SMS magnsendingar

SMS magnsendingar gera fyrirtækjum kleift að senda SMS skilaboð til allt að 50 aðila í einu, bæði innanlands og utan. Skilaboðin geta verið að hámarki 462 stafabil. Hægt er að nýta sér vefaðgang Símans eða hanna eigið viðmót og tengja lausnina þannig við önnur kerfi.

 


Kostir SMS magnsendinga

Mikið er um að fyrirtæki og félagasamtök noti magnsendingar í starfsemi sinni. SMS magnsendingar eru þá notaðar fyrir ýmiss konar tilkynningar, fundarboð og vöktun á tölvukerfum auk þess sem þjónustan nýtist mjög vel þeim sem þurfa að minna viðskiptavini á tíma sína eins og til dæmis tannlæknar, heilsugæslustöðvar og fleiri.


Aðrir vefir