Ferðanet Símans
Netsamband um allan heim
Með Ferðaneti Símans getur þú á einfaldan og þægilegan hátt komist í netsamband um heim allan. Ferðanet Símans er hugbúnaður sem þú sækir hér á síðunni og hleður í tölvuna þína. Þegar komið er á áfangastað velur þú þráðlaust netsvæði, opnar forritið og tengist netinu með einum hnappi.
Með Ferðaneti Símans greiðirðu eitt gjald óháð notkun og færð enga bakreikninga. Þú getur treyst því að um örugga tengingu sé að ræða. Hugbúnaðurinn er aðeins ætlaður Windows stýrikerfum.
Nánar um Ferðanet Símans
Ferðanet Símans kostar 5.990 kr. fyrir hvern hafinn mánuð og er krafa um sanngjarna notkun. Innifalið í mánaðargjaldinu er notkun á yfir 109.000 þráðlausum netsvæðum í yfir 70 löndum. Ferðanet Símans er í samvinnu við Orange.
Til að panta Ferðanet Símans skaltu hringja í 8004000 til að láta stofna aðgang. Þú sækir svo hugbúnaðinn hér á síðunni og setja hann upp á tölvunni þinni.
nánarKomdu til okkar
Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.
Senda fyrirspurn