Kostnaður við útkall sérfræðinga sem oft er dulinn liggur nú ljós fyrir á hverjum tíma. Viðskiptavinir í rekstarleigu hafa beinan aðgang að sérfræðingum Víðnetsreksturs Símans sem tryggir að brugðist er við eins fljótt og kostur er. Sérfræðingar Símans þekkja vel netumhverfi viðskiptavina og hafa einnig aðgang að öllum grunnkerfum Símans sem flýtir bæði fyrir greiningu og lagfæringu ef upp koma vandamál.
Rekstur á búnaði
Sérfræðingar að störfum
Síminn býður viðskiptavinum sínum heildarlausn í gagnaflutningi með því að leigja þeim endabúnað sem til þarf og sjá um rekstur á honum. Hjá Símanum eru sérfræðingar með mikla reynslu á rekstri endabúnaðar og því geta fyrirtæki einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og látið Símann sjá um gagnaflutningsnetið. Við þetta minnkar þörf fyrirtækja fyrir að hafa eigin sérfræðinga sem sjá um fjarskiptarekstur þess.
Innifalið í rekstrarleigu
- Cisco beinar
- Vinna við uppsetningu
- Breytingar á skilgreiningum í beinum
- Viðhald og varahlutir samkvæmt ábyrgðarskilmálum
Cisco Powered vottun
Síminn er eini IP þjónustusali á Íslandi sem hefur Cisco Powered vottun.
Meira um Cisco Powered vottunKomdu til okkar
Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.
Senda fyrirspurn