IP net Símans
Einkanet fyrir fyrirtækið
IP net Símans gerir fyrirtækjum kleift að tengja saman starfsstöðvar á lokuðu og öruggu einkaneti, og er því hentug lausn fyrir dreifða starfsemi. Mögulegt er að tengjast IP netinu nánast hvaðan sem er í heiminum.
Með IP neti Símans býðst fyrirtækjum heildarlausn í fjarskiptum. IP netið er fyrir allar stærðir fyrirtækja og ráðgjafar Símans ráðleggja hvaða fyrirkomulag hentar hverju sinni.
Umferð starfsstöðva og þjónustutenginga á IP neti Símans er einangruð frá annarri umferð sem fer um netið. Einnig er auðvelt að setja upp öfluga eldveggi.
Helstu kostir
- Möguleiki á hámarks nýtingu á þeirri bandbreidd sem fyrirtæki hefur yfir að ráða, ein tenging en margar lausnir.
- Hægt að samnýta bandvídd fyrir tal, mynd og gögn.
- Betri nýting á fjárfestingum í netkerfum og minni fjárbinding í búnaði með rekstrarleigu.
Starfsstöðvar
Traust tenging á lokuðu neti
Starfsstöðvar eru staðir sem fyrirtæki vill tengja sínu einkaneti, eins og höfuðstöðvar, verslanir, verksmiðjur og vöruhús. Á IP netinu er auðvelt að tengja starfsstöðvarnar saman inn á lokað og öruggt einkanet fyrirtækisins. Ef fyrirtækið stækkar er einfalt að bæta við starfsstöðvum og þannig víkka út einkanetið.
meira um starfsstöðvarKostir
- Öryggi
- Sveigjanleiki
Tengileiðir
Þrjár tengileiðir
Í boði eru þrjár leiðir til að tengjast internetinu eftir mismunandi þörfum fyrirtækja.
meira um tengileiðirÍ boði
- Tengileið I
- Tengileið II
- Tengileið III
Þjónustutengingar
Tengingar milli fyrirtækja
Síminn býður upp á þjónustutengingar á IP netinu til að tengja saman einkanet tveggja eða fleiri fyrirtækja. Einnig er hægt að nota þjónustutengingu til að tengjast þjónustu hjá Símanum eða þjónustuaðilum sem eru tengdir IP neti Símans. Gagnahraði þjónustutenginga getur verið frá 2Mb/s upp í 1000 Mb/s. Sé þjónustutenging notuð til að tengjast Internetinu er áskrift og gagnamagn ekki innifalið.
Möguleikar
- Tengingar milli einkaneta
Cisco Powered vottun
Síminn er eini IP þjónustusali á Íslandi sem hefur Cisco Powered vottun.
Meira um Cisco Powered vottunKomdu til okkar
Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.
Senda fyrirspurn