Gagnahólf
Gagnahólf gera kleift að senda tölvugögn eins og texta, stafrænt tal, skjöl og myndrænt efni milli tölva á mjög öruggan hátt. Gagnahólf byggir á X.400 kerfi sem er alþjóðlegur staðall fyrir rafrænar skeytasendingar á milli aðila.
Á Íslandi er Gagnahólf (X.400) kerfið notað af bankastofnunum, opinberum aðilum og einkafyrirtækjum. Notkunin nær bæði til almennra samskipta sem og sérhæfðra lausna fyrir pappírslaus samskipti. Viðtakandi þarf ekki að tengjast Gagnahólfum um leið og sendandinn þar sem kerfið tekur við sendingu og geymir eftir þörfum. Ef sending kemst ekki til skila af einhverjum ástæðum lætur kerfið sendandann vita nema um annað sé beðið.
Einkakerfi
Þeir sem nota Gagnahólf mikið, eins og til dæmis stofnanir og stór fyrirtæki, geta tengt eigið tölvukerfi við það og er þá talað um Einkakerfi. Margir innan sama fyrirtækis geta notfært sér nettengdar tölvur með þessum hætti. Sendingar til notanda tölvunnar eru geymdar í gagnahólfi hans og verður hann að sækja þær þangað. Notendur Einkakerfa eru t.d. Reykjavíkurborg og Ríkistollstjóri.
Verðskrá: GagnahólfTengt efni
Cisco Powered vottun
Síminn er eini IP þjónustusali á Íslandi sem hefur Cisco Powered vottun.
Meira um Cisco Powered vottunKomdu til okkar
Viltu slást í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum? Hringdu í síma 800 4000, komdu í verslanir Símans eða sendu fyrirspurn.
Hafa samband