SIP Trunking
Samskiptastaðall
SIP er samskiptastaðall fyrir rauntímatengingar yfir netið og meðal annars notað fyrir tal- og myndsímtöl. Til þess að tryggja öryggi og gæði símtala fer SIP umferð hjá Símanum ekki út á almenna internetið heldur aðeins um einkanet hvers fyrirtækis fyrir sig. Með því að fá aðgang að SIP Gátt Símans opnast nýir möguleikar í meðhöndlun símtala sem hafa ekki verið áður í boði. Áður en pöntuð er SIP Gátt þarf að tryggja að viðkomandi fyrirtæki sé tengt IP neti Símans og að símstöð fyrirtækisins styðji SIP samskiptastaðilinn.
Skilmálar fyrir SIP trunking| Stofngjald án vsk | Stofngjald m. vsk | Mánaðargjald án vsk | Mánaðargjald m. vsk | |
|---|---|---|---|---|
| SIP tenging 1 (allt að 4 samhliða samtöl) | 3.984 kr. | 5.000 kr. | 3.214 kr. | 4.034 kr. |
| SIP tenging 2 (allt að 10 samhliða samtö) | 3.984 kr. | 5.000 kr. | 7.229 kr. | 9.072 kr. |
| SIP tenging 3 (allt að 30 samhliða samtöl) | 3.984 kr. | 5.000 kr. | 12.852 kr. | 16.129 kr. |
Netið eða internetið?
Til að tryggja öryggi og gæði símtala fer SIP umferð ekki út á almenna Internetið heldur aðeins um einkanet hvers fyrirtækis fyrir sig. Þetta þýðir að fyrirtækið hefur fullkoma stjórn á þeirri umferð sem fer um þeirra einkanet og getur því stýrt hvaða umferð hefur forgang. Þessi forgangsröðun er forsenda þess að upplifun fyrirtækisins á gæðum símtala sé eins og best er á kosið. En það er ekki bara gæðastýring sem skiptir máli þegar símtöl fara um netið. Ef símtöl fara út á almenna internetið en ekki um einkanet fyrirtækisins án þess að vera dulkóðuð geta þau verið sýnileg hverjum sem hefur áhuga.
PSTN = Almenna símkerfið - ITSP = Einkanet
Lesa meira um EinkanetLesa meira um Forgangsröðun gagna
Allt á einum stað
Síminn hefur áralanga reynslu af því að reka og þjónusta bæði net- og símkerfi.
Lesa meriaKomdu til okkar
Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.
Senda fyrirspurn