Símavist

Farsíminn er líka hluti af IP símkerfinu

Í Símavist býðst fyrirtækjum aðgangur að IP símkerfi gegn föstu mánaðargjaldi fyrir hvern starfsmann. Síminn sér um allar uppfærslur, rekstur og viðhald á símkerfinu og fyrirtækið losnar þannig við útgjöld og umstang sem fylgir þessum þáttum. Jafnframt hafa fyrirtæki í Símavist aðgang að skalanlegu símkerfi sem ætti að henta öllum sem tengjast IP neti Símans. Hægt er að bæta við fjölbreyttri viðbótarþjónustu eftir þörfum fyrirtækja.

Helstu kostir Símavistar

  • Sterk samþætting milli símkerfalausnarinnar og GSM kerfisins
  • Símkerfið er hýst í öruggum vélasölum Símans.
  • Fyrirtæki hafa aðgang að tengingum, breytingum og færslum á númerum í gegnum vefgátt.
  • Frasar / talvélar á íslensku.
  • Fyrirtæki hafa aðgang að öflugu tölvuskiptiborði þar sem hægt er að fylgjast með viðveru notenda í kerfinu.
  • Öll símtöl innan fyrirtækis á 0 kr.*

Farsími í Símavist

Sveigjanleiki í samskiptum

Starfsmenn fyrirtækja sem eru mikið á ferðinni eða jafnvel ekki með fasta vinnustöð geta verið með farsímann tengdan inn í Símavist. Þannig eru starfsmenn ekki háðir því að vera við skrifstofuna til að geta verið hluti af símkerfi fyrirtækisins.

meira um farsíma í Símavist

Kostir

  • Óháð áskriftarleið
  • Sýnileiki á skiptiborði
  • Þægindi

Óháð áskriftarleið

Farsímanotandi í Símavist getur valið um hvaða farsímaáskriftarleið hentar honum best. Þannig getur fyrirtækið áfram haft hagstæðustu farsímaáskriftin miðað við sína notkun. Þrátt fyrir þetta val hringir fyrirtæki samt frítt á milli Símavistarnotenda sinna.

Sýnileiki á skiptiborði

Starfsmaður skiptiborðs sér hvort að starfsmenn eru uppteknir í símanum og getur því treyst því að símtal sem er gefið áfram skili sér, og á þetta einnig við um farsímanotendur Símavistar. Svari starfsmaður ekki símtalinu innan ákveðins tíma fer símtalið til baka á skiptiborðið.

Þægindi

Starfsmönnum gefst kostur á að nýta sér innanhúss stuttnúmer til að hafa samband innan fyrirtækisins hvort sem notandinn hringir úr farsíma, borðsíma eða tölvusíma. Einnig er hægt að samnýta talhólf farsíma og borðsíma og þannig hafa sama talhólf óháð endabúnaði.

*Greitt er mánaðargjald og önnur notkun samkvæmt verðskrá.

Einblöðungur um Símavist (PDF) Skilmálar fyrir Símavist

GSM Samband

Sveigjanleg áskriftarleið með eitt mínútuverð, óháð kerfi.

Meira um GSM Samband

Komdu til okkar

Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.

Senda fyrirspurn

Aðrir vefir