Þjónustunúmer eru tilvalin leið fyrir ýmsa aðila, eins og fyrirtæki eða félagasamtök, til að auka þjónustu við viðskiptavini sína með enn betri símaþjónustu.
800 - Gjaldfrjáls númer
800 númer virka á þann veg að öllum innhringingum í viðkomandi 800 númer er vísað yfir í önnur númer, eitt eða fleiri, sem fyrirtækið greiðir fyrir samkvæmt gjaldskrá 800 númera. Fyrirtæki tekur ákvörðun um hvort frítt eigi að vera að hringja úr farsímum.
Fyrirtæki geta valið sér 800 númer og er þannig til dæmis tilvalið að nota nafn fyrirtækis. Dæmi: 800 Simi (8007464). 800 númer er vísað yfir í undirnúmer hjá fyrirtækjum og þarf undirnúmer fyrirtækis þá að vera hjá Símanum.
900 númer gefur möguleika á að veita ýmiskonar þjónustu í gegnum simann gegn gjaldi. 900 númera þjónustan virkar á þann veg að Síminn innheimtir fyrir símtöl á yfirverði í 900 númer í umboði rekstraraðila númersins.
Hægt er að hafa sjálfvirka og mannlega svörun. Sjálfvirk svörun hentar vel fyrir ýmiskonar afþreyingar og upplýsingaveitur þá er uppköllum í 900 númer vísað í sjálfvirkt svarkerfi eða talvél og undirnúmer því óþörf.
Mannleg svörun hins vegar fyrir ráðgjöf, en þá vísa 900 númerinu í undirnúmer sem viðkomandi þjónustuaðili svarar úr. Ekki er hægt að vísa símtölum í 900 númer beint í GSM númer, en mögulegt er að nýta hringiflutning þegar þörf er á. Undirnúmer þarf að vera hjá Símanum.