Þjónustuvefur fyrirtækja

Fullkomin yfirsýn á Þjónustuvef fyrirtækja

Þjónustuvefurinn gefur fyrirtækjum aukna yfirsýn yfir reikninga sína, heildarkostnað og notkun hjá Símanum. Þar er hægt að panta margvíslega þjónustu og gera breytingar
 á þeim þjónustuleiðum sem fyrirtækið notar.


Notendur

Fyrirtækjum býðst að vera með einn aðalnotanda sem getur úthlutað aðgangi til aukanotenda með mismiklum sýnileika og réttindum. Starfsmaður getur t.d. eingöngu verið með aðgang að þeim reikningum sem viðkoma hans deild eða völdum aðgerðum eins og að panta farsímanúmer.

Að stofna aðgang

Þegar notandi fær aðgang að þjónustuvefnum gætum við þess að hann sé vandlega auðkenndur. Til þess að tryggja að aðeins réttur aðili fái aðgang að réttu fyrirtæki þá sendum við rafrænt skjal í Heimabanka notandans og Netbanka fyrirtækisins með staðfestingarbeiðni.

Meira: Að stofna aðgang