Umsögn viðskiptavinar
„Þjónustuvefurinn auðveldar mér að öðlast yfirsýn yfir reikninga og alla þá þjónustu sem ég fæ hjá Símanum. Ég get farið inn á vefinn og skipulagt reikninga, breytt merkingu við númer, fylgst með notkun t.d. á símtölum og niðurhali. Einnig auðveldar vefurinn mér að panta vöru og þjónustu. Þá gefur þjónustuvefurinn mér kost á að nálgast skýrslur sem sýna þróun kostnaðar á milli ára og greina notkun niður á tegund þjónustu. Þannig hef ég tök á að gera nákvæmar kostnaðaráætlanir fyrir fyrirtækið.“
Anna Rún Ingvarsdóttir,
fjármálastjóri Almennu verkfræðistofunnar

Heildaryfirlit notkunar á yfirstandandi tímabili eftir viðskiptareikningum. Inniheldur óreikningsfærða gagnanotkun, símnotkun og mánaðarverð.
Yfirlit yfir innborganir, leiðréttingar, kreditreikninga, reikninga, vexti og ógreidda reikninga. Viðskiptavinir geta breytt heiti viðskiptareikninga og símanúmera á vefnum og flutt símanúmer á milli reikninga ef þörf krefur.
Hægt er að sjá ýmsar skýrslur er varða heildarkostnað og skiptingu kostnaðar, eins og þróun farsímanotkunar.
Hægt er að panta þjónustu og gera breytingar á þeim þjónustuleiðum sem fyrirtækið notar, eins og á GSM, Interneti, ADSL, símalínum og gagnaflutningsþjónustu.