Fyrirtækjapóstur Símans byggir á Microsoft Exchange 2007 póstþjónum. Með Fyrirtækjapósti Símans og Microsoft Outlook geta starfsmenn gert miklu meira í tölvupóstskerfinu eins og að deila dagbókum, tengiliðum, verkefnalistum og fleira.
Microsoft Outlook er fáanlegt fyrir vinnustöðina, í vefvafra og farsíma. Þannig gefst möguleiki á að vera sítengdur, hvort sem er á skrifstofunni, í bústaðnum, bílnum eða heima. Ef breyting er gerð til dæmis á tengilið á einum stað vistast breytingin á netþjónum Símans og yfirfærist á farsímann og tölvuna þína. Fyrirtækjapóstur Símans hentar jafnt fyrir einyrkja sem lítil og stór fyrirtæki.
Microsoft Hosted Exchange 2007 er ein öflugasta tölvupóstlausnin á markaðinum í dag og byggir á ítrustu öryggisstöðlum. Með lausninni fæst traust auðkenning notenda og dagleg eru tekin afrit sem geymd eru á öruggan hátt. Jafnframt eru gögnin dulkóðuð þegar flutningur þeirra á sér stað með því að nota hefðbundnar samskiptareglur eins og SSL (Secure Sockets Layer), til að koma í veg fyrir að þau komist í hendur óviðkomandi aðila.