Öryggi í fullkomnum vélasal

Tækjasalir Símans eru með fullkomnustu aðstöðu sem þekkist hérlendis hvað varðar öryggi og tæknilegan aðbúnað. Vistun tölvubúnaðar og tölvukerfa hjá Símanum tryggir gegn óvæntri og utanaðkomandi hættu á borð við eldsvoða, jarðskjálfta, rafmagnsleysi, vatnsleka eða vírusa. Verði óhapp í fyrirtækinu þínu eru bókhald, viðskiptamannaskrár, uppgjör, tengiliðir og önnur gögn ávallt á öruggum stað.


Vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis ISO 27001

Starfsemi hýsingarrekstrar Símans er vottuð samkvæmt ISO 27001:2005 staðlinum en hann veitir fullvissu um það að fyllsta öryggis sé gætt við vörslu og meðferð gagna í meðförum Símans sem og í öllum rekstri og þjónustu við viðskiptavini. Vottun sem þessi er aðalsmerki hágæða þjónustuaðila og forsenda þjónustu við kröfuharða viðskiptavini.

Kostir

  • Öryggi við vörslu og meðferð gagna

Vélasalir Símans

Síminn rekur þrjá vélasali. Tveir þeirra eru staðsettir í Ármúla og eru þeir tengdir saman með Dark-fiber ljósleiðara. Netkjarnar í sölunum eru tengdir saman og búnaður viðskiptavini getur því legið hvoru megin sem er. TSM afritunar stöðvar eru í sitthvorum salnum og eru gögn spegluð á milli sala til að tryggja öryggi. Þriðji vélasalurinn er á Akureyri sem gerir Símanum kleift að þjóna viðskiptavinum sínum á landsbyggðinni betur.

nánari upplýsingar um vélasali Símans

Kostir

  • 3 vélasalir
  • Mikið öryggi

Vélsasalur 1

Salurinn er uppbyggður með APC InfraStruXure árið 2006. Salurinn er byggður upp í eyjum og er hver eyja sjálfstæð í kælingu og rafmagni. Hita- og rakaskynjun er frá Apc og tengist með ISX manager. Það er samtengt við miðlægt Apc eftirlitskerfi. Umsjónarmenn/kallvakt vélarsalar fá e-mail/sms ef ákveðin skilyrði eru ekki uppfyllt. Salurinn er vaktaður með Myrasys myndavélakerfi frá Securitas, Hreyfiskynjun og aðgangsstýring er frá Nortek. Slökkvikerfi er frá Öryggismiðstöðinni. Diselstöð er tengd við salinn og þjónar hún bara salnum.

Vélsasalur 2

Salurinn er byggður upp með IBM skápum, loftkældu kerfisgólfi, Salurinn var byggður upp árið 2000. Salurinn er vaktaður með Myrasys myndavélakerfi frá Securitas, Hreyfiskynjun og aðgangsstýring er frá Nortek. Hita- og rakaskynjun er frá Apc og tengist með ISX manager. Það er samtengt við miðlægt Apc eftirlitskerfi. Umsjónarmenn/kallvakt vélarsalar fá e-mail/sms ef ákveðin skilyrði eru ekki uppfyllt. Slökkvikerfi er frá Securitas. Diselstöð er tengd við salinn.

Sérþekking

Síminn er gullvottaður samstarfsaðilinn Microsoft með premier samning.

Sérþekking

Komdu í VIST

Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.

Senda fyrirspurn

Aðrir vefir