Afritun

Prófaðu Netafritun Símans frítt í 30 daga

Öruggt og þægilegt aðgengi að tölvugögnum er nauðsynlegt í daglegum rekstri fyrirtækja. Í VIST eru gögn afrituð sjálfvirkt og geymd á öruggan hátt utan fyrirtækisins. Auðvelt er að endurheimta þau hvar og hvenær sem er í gegnum vafra.

Þú hefur möguleika á að prófa afritun Símans frítt og án skuldbindinga í 30 daga, að hámarki 500MB. Ef áhugi er á að halda áfram getur fyrirtækjaráðgjöf Símans gengið frá samningi og er þá gagnasvæðið jafnframt stækkað, að lágmarki í 5GB.


Helstu kostir Afritunar Símans

  • Algjörlega sjálfvirkt, tekur afrit af gögnum á þeim tíma sem óskað er
  • Hægt er að endurheimta gögnin hratt og örugglega þegar þarf
  • Sparar kostnað við afritunarstöðvar, segulbönd og hugbúnað sem annars er óumflyjanlegur
  • Sparar þann tíma sem fer í umsýslu með afritun, eins og að skipta um spólur eða diska

Nánar um Netafritun Símans

Netafritun Símans er aðgengileg í þægilegu vefumhverfi, á íslensku og ensku. Gögnin eru dulkóðuð og þjöppuð daglega og send gegnum Internetið með hámarksöryggi í Gagnaver Símans.

Netafritun Símans heldur utan um afritunarsögu og er hægt að endurheimta skrár og möppur frá því í gær, síðustu viku eða fyrir 60 dögum síðan, eða allt að eitt ár aftur í tímann þegar þörf er á.

Netafritun Símans vinnur bæði á þinni tölvu og á miðlurum kerfisins. Ef ekki er tekið afrit einhverra hluta vegna mun stjórnkerfi Netafritunar Símans senda tilkynningu þess efnis til viðeigandi aðila.

Netafritun: Verð

Spurt og svarað

Aðrir vefir