Í upphafi hleður þú niður forritinu og setur upp prufuaðgang og velur notandanafn. Forritið er á íslensku eða ensku. Þá getur þú byrjað að afrita allt að 500Mb í einn mánuð. Um leið og þú hefur ákveðið hvaða gagnamagn hentar þér í afritun þarftu að panta hjá okkur og ganga frá samningi þar um. Þar með stækkum við gagnasvæði þitt í að minnsta kosti í 3GB.
Þegar uppsetningu er lokið byrjar Netafrit Símans að afrita þau gögn sem þú biður um. Í fyrsta sinn getur það tekið talsverðan tíma, allt eftir gagnamagni. Það er vegna þess að í upphafi er tekið afrit af öllu umbeðnu, en eftir það er bara tekið afrit af því sem breytist á þeim tíma sem þú óskar. Með lykilorði getur þú sótt gögnin aftur á tölvuna þína frá Netafriti Símans hvar sem er í heiminum svo fremi sem þú hafir góða Internet tengingu. Kerfið mun láta þig vita um framvindu afritunar daglega í tölvupósti.
Þú setur upp dulkóðunarlykil (lykilorð) sem enginn annar veit. Þessi lykill fer aldrei yfir Internetið, þannig að þó hann glatist getur enginn sótt gögnin þín. Áríðandi! Ef þú glatar lyklinum getur hvorki þú né Netafritun Símans sótt endurheimt gögnin þín. Því skal geyma dulkóðunarlykilinn á öruggum stað þar sem hann glatast ekki. Netafritun Símans bíður uppá að setja dulkóðunarlykilinn í innsiglað umslag í geymslu.