Hólfaþjónusta

Talhólf

Talhólf tekur á móti skilaboðum þegar ekki er svarað í símann, hann er á tali, slökkt á honum eða síminn utan þjónustusvæðis. GSM síminn lætur þig svo vita með SMS skilaboðum um leið og þú færð ný skilaboð.

Hlusta á skilaboð

Hringt er í gjaldfrjálst númer 1411 úr GSM símanum þínum til að hlusta á skilaboð í talhólfinu. Til að hlusta á skilaboð í útlöndum er hringt í +3548800100 og slegið inn GSM númer og því næst #lykilnúmer#.

Talhólf í útlöndum

Þegar þú ert í útlöndum greiðir þú fyrir símtöl sem enda í talhólfinu þínu eins og um móttekið símtal sé að ræða. Símtöl í talhólf frá útlöndum kosta einnig það sama og önnur símtöl til Íslands. Ef þú vilt ekki hafa talhólfið þitt virkt í útlöndum skaltu aftengja hringiflutning í talhólfið á meðan þú ert erlendis. Athugið að ekki er nóg að hafa slökkt á símanum ef hringiflutningur í talhólf er virkur. Hringiflutning í talhólf þarf alltaf að aftengja sérstaklega.

Uppsetning talhólfs

Til að lesa inn símsvarakveðju og velja lykilnúmer er hringt í 1411 og talvél leiðir mann áfram í uppsetningunni.

Svarhólf

Þegar hringt er í svarhólf þá eru lesnar upp upplýsingar frá eiganda svarhólfsins en þeir sem hringja geta ekki skilið eftir skilaboð.
Svarhólf geymir upplýsingar eða skilaboð sem svarhólfseigandi vill koma á framfæri við þann sem hringir í hólfið. Upplýsingarnar eru lesnar upp þrisvar sinnum. Svarhólfseigandi getur annað hvort látið símanotendur hringja beint í svarhólf sitt eða flutt viðkomandi símtöl í svarhólf með símtalsflutningi.


Faxhólf

Faxhólf er hluti af talhólfaþjónustunni og er móttöku- og geymslustaður fyrir faxsendingar sem sendar eru á faxhólfsnúmerið. Á einfaldan hátt er hægt að hringja í númerið og fá gögn send í faxtækið. Einnig er hægt að senda gögn í faxtæki á sjálfvirkan hátt.




Vefhlutar

Aðrir vefir