Fréttir

2012| 2011 | 2010 | 2009 | 2008 | 2007 | 2006 | 2005 | 2004 | 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 1999 | 1998 |

Niðurstaða PFS skýrir fyrirkomulag sýndarnetsaðila

14.05.2012

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 13/2012 þar sem stofnunin kemst að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn jafnræðiskvöð á heildsölumarkaði fyrir lúkningu símtala í farsímanetum. PFS hefur með ákvörðun sinni skýrt réttaróvissu sem var um fyrirkomulag sýndarnetsaðila.

Er 3G samband í geimnum?

09.05.2012

Síminn, í samstarfi við Verkfræðideild HR og CCP ætla að senda geimfar 100.000 fet upp í loftið. Geimfarið er fest við helíumblöðru og verður vopnað þremur GoPro HD upptökuvélum auk Samsung Galaxy Note snjallsíma sem mun streyma ferðalaginu í beinni útsendingu í gegn um 3G net Símans.

Ljósnet Símans nær til 75% heimila í landinu árið 2014

02.05.2012

Ljósnetsvæðing er hafin á suðvesturhluta landsins og 100 þúsund heimili eiga kost á tengingu eftir tvö ár Nú Þegar eiga um 46 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu þess kost að tengjast Ljósneti Símans. Fjárfesting Símans og Mílu er um 4 milljarðar króna.

Verðbreytingar 1. júní 2012

30.04.2012

Þann 1. júni taka gildi breytingar á verðskrá Símans.

Öruggari netnotkun

12.03.2012

Við hjá Símanum leggjum okkur fram við að hjálpa viðskiptavinum okkar að nota internetið á sem öruggastan hátt. Í fyrsta lagi viljum við að gögn viðskiptavina okkar séu sem öruggust og varin á bakvið lokaðar tengingar.

Nýr samningur um Símamótið undirritaður

02.03.2012

Síminn og Breiðablik undirrituðu á miðvikudaginn nýjan samning um Símamótið. Símamótið hefur verið haldið síðan árið 2005 og er fyrir stelpur í 5., 6. og 7. flokki. Mótið er eitt það stærsta sem haldið er á hverju sumri og hefur vaxið ár frá ári, en í fyrra var metþátttaka þegar rúmlega 1600 keppendur voru skráðir til leiks.

Stöð 2 Fjölvarp loksins aðgengilegt á myndlyklum Símans

01.03.2012

Forstjórar Símans og 365 miðla skrifuðu í dag undir samkomulag sem gerir 365 miðlum kleift að dreifa öllu sjónvarpsefni félagsins um kerfi Símans.

Evrópusambandið mælir nethraða á Íslandi

10.02.2012

Leitað eftir íslenskum sjálfboðaliðum til taka þátt í evrópskri rannsókn á nethraða í samræmi við netvæðingarmarkmið ESB. iPad2 í boði. Síminn hvetur fólk til þess að taka þátt.

Hvað er samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja - morgunverðarfundur

09.02.2012

Morgunverðarfundur Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins, miðvikudaginn 15. febrúar kl. 8.30–10.00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (þingsal 3).

Gagnleg úttekt sem skýrir reglur á fjarskiptamarkaði

17.01.2012

Síminn fellst á úrbótatillögur Póst- og fjarskiptastofnunar í kjölfar úttektar óháðs aðila á samskiptum smásölu og heildsölu og notkun umferðarupplýsinga hjá fyrirtækinu. Síminn telur ábendingar um úrbætur vera gagnlegar og lið í að gera enn betur. PFS birtir úrbótartillögurnar og ákvörðun sína á vef stofnunarinnar í dag.

Aðrir vefir