Fréttasafn

2010 | 2009 | 2008 | 2007 | 2006 | 2005 | 2004 | 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 1999 | 1998 |


18.12.2006
Í tilefni þess að nú er hægt að senda myndir beint úr farsímanum í Safnið, er hægt að senda mynd eða mynd með texta dagana 18. - 22. desember án aukakostnaðar, innan kerfis Símans.

17.12.2006
Bráðabirgðaviðgerð á vesturhluta Cantat-3 sæstrengsins, á milli Íslands og Kanada er lokið. Fyrr í kvöld lauk bráðabirgðaviðgerð á austurhluta strengsins.

17.12.2006
Bráðabirgðaviðgerð á Cantat sæstrengum milli Íslands og Evrópu er lokið. Strengurinn bilaði um miðmætti í nótt. Enn er unnið að bráðabirgðaviðgerð á sambandinu vestur til Bandaríkjanna. Talið er að bilunin sé í eingrun á strengnum milli Kanada og Íslands. Fullnaðarviðgerð fer fram síðar.

17.12.2006
Farice hf. hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: "Að kvöldi 16. desember bilaði Cantat-3 sæstrengurinn, sem liggur frá Kanada til Bretlands, Danmerkur og Þýskalands, með greiningum til Íslands og Færeyja. Bilun þessi olli rofi á allri fjarskiptaumferð um Cantat-3.


17.12.2006
Bilun kom upp í Cantat sæstrenginn um hálf tólfleytið í kvöld. Ekki er vitað hvað veldur sambandsleysinu en unnið er að bilanagreiningu.

15.12.2006
Síminn mun bráðlega bjóða viðskiptavinum sínum aðgang að forriti sem nefnist iPass. Með forritið í tölvunni geta viðskiptavinir Símans á ferðalagi erlendis tengt sig inn á þráðlaust Internet svo að segja hvar sem er með lágmarkstilkostnaði.

15.12.2006
Síminn hefur frá og með deginum í dag ákveðið að breyta nokkrum liðum í verðskrá sinni.

12.12.2006
Með SMS-Markaðsvakt Símans getur athafnafólk fengið fjármálaupplýsingar sendar beint í GSM-símann sinn.

06.12.2006
Síminn býður fyrirtækjum góðar fjarvinnulausnir sem henta vel þeim sem vilja bjóða starfsmönnum sínum upp á að vinna hvar sem er í sama umhverfi og þeir hafa á vinnustað.


05.12.2006
Til þess að koma til móts við vaxandi notkun farsíma í útlöndum hefur Síminn ákveðið að breyta verði á símtölum til Íslands. Viðskiptavinir Símans greiða 137 króna tengigjald í upphafi en eftir það 11 krónur á mínútuna sem er innanlandstaxti.




Vefhlutar

Aðrir vefir