Fréttir

04.03.2010 | 08:35

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Vef SMS á siminn.is kostar 5 krónur frá 1. mars

Highslide JS

Síðastliðið vor lokaði Síminn, fyrst fjarskiptafyrirtækja, fyrir auðkennislaus SMS vefskilaboð og krafðist auðkennis á öllum skilaboðum. Þá var loku fyrir það skotið að hægt væri að senda nafnlaus sms skilaboð og þaðan í frá urðu skilaboðin ávallt auðkennd með símanúmeri sendanda. Tilgangurinn var að auka öryggi við notkun SMS skilaboða. Einungis viðskiptavinir Símans og Ring geta því nýtt sér Vef SMS og viðtakandi SMS-skilaboða veit því ávallt hver sendandinn er.  
 
Þegar Síminn tilkynnti um þessa lokun kom fram að þjónustan yrði án endurgjalds til 1. septemer 2009. Ákveðið var að fresta gjaldtökunni og tók hún gildi 1. mars 2010. Þetta þýðir að sendandi greiðir 5 kr. fyrir Vef SMS óháð í hvaða kerfi skilaboðin eru send. Gult box fyrir ofan „senda hnappinn“ segir til um hvað sendingin kostar.  Vef SMS þjónusta Símans og Ring veitir ýmsa möguleika sem auka þægindi svo sem að senda SMS á hópa sem geymdir eru á heimasvæði notandans o.fl.


« Til baka

Aðrir vefir