Fréttir

23.07.2010 | 10:55

Staðan í golfinu beint í GSM símann

Highslide JS

Íslandsmótið í höggleik fer fram þessa dagana í Kiðjabergi í Grímsnesi. Nær allir sterkustu kylfingar landsins taka þátt í Íslandsmótinu í ár, meðal annars atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson sem hefur ekki verið meðal keppenda á síðustu Íslandsmótum.

Síminn í samstarfi við Golfsamband Íslands og Golfheima skrá skor keppenda beint í GSM síma og má fylgjast með stöðunni beint í símanum á m.golfheimar.is og hér á netinu.

Þetta er nýjung sem kynnt var til leiks í íslensku mótaröðinni í sumar og hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur.


« Til baka




Vefhlutar

Aðrir vefir