Fréttir

03.09.2010 | 10:23

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Nýr framkvæmdastjóri á fyrirtækjasviði Símans

Highslide JS

Guðmundur Stefán Björnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Símans og tekur hann við starfinu af Elínu Þórunni Eiríksdóttur. Guðmundur Stefán hefur starfað hjá Símanum í 13 ár og sinnt ýmsum störfum, meðal annars hefur hann starfað á Fyrirtækjasviði frá því að það var stofnað sem séreining innan Símans.  Undanfarin sex ár hefur Guðmundur Stefán starfað sem forstöðumaður yfir þremur mismunandi deildum hjá Símanum og núna síðast yfir vörustýringu á Fyrirtækjasviði.

Guðmundur Stefán er iðnaðartæknifræðingur að mennt af þróunar- og sjálfvirknisviði.  Guðmundur Stefán er 39 ára gamall,  kvæntur Fríðu Kristínu Jóhannesdóttur, rekstrarfræðingi, og eiga þau tvö börn.


« Til baka

Aðrir vefir