Fréttir

08.11.2010 | 08:22

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Stöðvum innbrot

Highslide JS

Lögreglan, Securitas, Sjóvá og Síminn hafa tekið höndum saman og munu ýta úr vör átakinu “Stöðvum innbrot” á mánudag. Tilgangurinn með átakinu er að virkja landsmenn til þess að hjálpa við draga úr innbrotum með því að vakta umhverfi sitt og nýta þær forvarnir sem til eru.

Skilaboðin eru þau að hver og einn getur auðveldlega hjálpað til við að verjast innbrotum í nágrenni sínu en fyrir flestum okkar er heimilið heilagur staður.  Síminn leggur sitt af mörkum með því að hvetja fólk til þess að nota farsímann ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir.  Farsíminn getur gegnt öryggisthlutverki  en hann er það fyrsta sem við grípum í til þess að kalla á hjálp með því að hringja í 112. Minna er um að almenningur geri sér grein fyrir því að í sumum tilfellum hefur lögreglan gómað þjófa eftir að símnotandi tók myndir af bíl eða þjófum á farsímann og sendi lögreglu strax. Alltof fáir átta sig á þessum möguleika en slíkar myndir má senda beint úr farsímanum á netfang lögreglunnar : abending@lrh.is


« Til baka

Aðrir vefir