Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Síminn safnar smáraftækjum fyrir Fjölskylduhjálpina
Síminn hvetur fólk til þess að styðja starf Fjölskylduhjálpar Íslands fyrir jólin með því að koma með gömul og ónýt smáraftæki í verslanir fyrirtækisins. Tækin verða send í endurnýtingu og mun andvirði þeirra renna til Fjölskylduhjálparinnar.
Með því að koma með gömul og ónýt smáraftæki í verslanir Símans geta viðskiptavinir einnig lagt sitt á vogarskálarnar í umhverfisvernd. Meðal þess búnaðar sem Síminn mun taka við eru GSM símar, fartölvur, leikjavélar, stafrænar myndavélar, MP3 spilarar, stafrænar upptökuvélar og netlyklar. Tekið er á móti búnaðinum í öllum verslunum Símans; í Smáralind, Kringlunni, Ármúla og á Akureyri.
"Við úthlutum matvælum til 600 fjölskyldna á hverjum miðvikudegi og gerum við ráð fyrir að sú tala fari upp í 1.000 fjölskyldur vikulega.
Neyðin er mikil og þess vegna fögnum við framtaki Símans og vonum að sem flestir sjái sér fært um að leggja okkur lið,” segir Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands."
Hægt er að koma með gömul og ónýt raftæki í verslanir Símans í Kringlunni, Ármúla, Smáralind og Glerártorgi á Akureyri. Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á búnaðinum til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja í Evrópu.
