Fréttir

31.01.2010 | 16:53

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Verðbreytingar á þjónustu Símans 15. mars

Síminn hækkar verð á þjónustu sinni frá og með  15. mars nk. vegna heimasíma, sjónvarps, áskriftar að GSM og SMS í Frelsi. Einnig munu mælingar símtala í talsímakerfinu breytast frá sama tíma. Breytingarnar  eru vegna kostnaðarhækkana í rekstri.  Áhrif til hækkunar  á meðalreikning heimilis er um 3,5%.
 
Síminn hækkaði síðast verð 1. mars 2009 en frá þeim tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,7%. Ástæða fyrir hækkun hjá Símanum núna er kostnaðarhækkun hjá erlendum birgjum vegna margvíslegra samninga sem tengjast kerfum Símans. Um er að ræða þjónustusamninga sem eru nauðsynlegir til þess að viðhalda fjarskiptakerfum og uppfæra þau. Þá má benda á að þegar Síminn hækkaði síðast verð var gengisvísitala krónunnar um 191 en stendur nú í 233.
 
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér breytingarnar vel: Sjá nánari upplýsingar um verðbreytingar


« Til baka

Aðrir vefir