Fréttir

01.03.2010 | 08:44

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Ljósnet Símans inn á um fjörutíu þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu

Síminn hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu sem felur í sér breytingu á Breiðbandi Símans yfir í Ljósnet Símans. Þetta þýðir að á næstu tveimur árum verði um 40 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu tengd við svokallað ljósnet Símans.  Þetta er bylting fyrir neytendur sem munu nú fá aðgang að allt að 100 Mb hraða á sekúndu á mjög góðu verði. Á einungis tveimur árum mun þessum fjörutíu þúsund heimilum gefast kostur á margföldum Internethraða og háskerpu-, gagnvirku sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.

Meðfylgjandi mynd sýnir áætlaða uppbyggingu á Ljósneti Símans. Á þessu svæði eru um 60 þúsund heimili en 40 þúsund heimili munu eiga kost á því að tengjast Ljósneti Símans.

Dæmi um hvernig nýta má Ljósnet Símans

  • Tvær háskerpu sjónvarpsrásir 16 Mb/s
  • Tvær hefðbundnar sjónvarpsrásir 8  Mb/s
  • Háhraðainternettenging (leikir, fjarvinna og fl.) 15 Mb/s
  • 5 VoIP símarásir 1 Mb/s

Samtals:  40 Mb/

Þessa 40 Mb/s þarf ef allt ofangreint  er í gangi samtímis, (varla skemmtilegt heimilishald þó). Síminn á þá 60 Mb/s eftir til að mæta einhverri þjónustu sem ekki er enn komin fram á sjónarsviðið.  

Um að ræða tækni sem felur í sér notkun á ljósleiðurum sem eru til staðar nú þegar og liggja inn í breiðbandsgötuskápana en notaðir verða um 600 götuskápar í verkefnið. Þaðan er koparinn nýttur inn á heimilin með töluvert lægri tilkostnaði en þeim sem t.d. Gagnaveita Reykjavíkur hefur varið til ljósleiðaraframkvæmda. Með þessu móti getur Síminn boðið heimilunum margfaldan  internethraða , háskerpu- og gagnvirkt sjónvarp, möguleika á fleiri myndlyklum, Sjónvarp Símans og myndbandaleigu í gegnum Skjábíó.

Kostnaður

Verð Ljósnets er mjög hagstætt. Hægt er að velja um þrjár áskriftarleiðir og á mánuði
t.d. sú leið sem býður 50 Mb/s  og 10GB af erlendu niðurhali 3.650 kr.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans: „Fyrir um 790 milljónir króna getur Síminn tengt fjörutíu þúsund heimili með allt að 100 Mb hraða á sekúndu. Þetta er aðeins brotabrot af því fé sem Gagnaveitan hefurvarið í í lagningu ljósleiðara inn á heimilin. Ljósnet Símans mun ná til tæplega tvöfalt fleiri heimila en ljósleiðarinn nær nú til. Ljósleiðarinn er visslulega frábær tækni en um allan heim, þar með talið á Íslandi, liggja milljónir kílómetra af koparvírum í jörðu. Þessi kerfi eru oft í eigu stærstu fjarskiptafyrirtækja heims og þau hafa einfaldlega einbeitt sér að því á undanförnum árum að finna leiðir til þess að nýta þessa fjárfestingu betur og hafa nefnt þessa tækni „Fiber to the curb“ og „Fiber to the home/building.  Með því að nýta koparinn með ljósleiðaranum hefur flutningsgetan margfaldast.  Ljósnet á borð við það sem Síminn býður nú uppfyllir fyrirsjáanlegar þarfir heimila næsta áratuginn, að minnsta kosti.“  

Íbúar í Borgarholtshverfi í Reykjavík verða fyrstir til að eiga kost á að nýta sér þessa tækni fyrir utan þau nýju hverfi þar sem Ljósnet Símans var tengt strax við uppbyggingu. Vinna við að tengja Ljósnetið á höfuðborgarsvæðinu er hafin og er gert ráð fyrir að það taki Símann rúmlega tvö ár að klára að tengja fjörutíu þúsund heimili.

Nokkrar staðreyndir

  • Samkvæmt spám Technology Future Inc, TFI, munu kröfur um bitahraða umfram ADSL2+ (24 Mb/s) fyrst hefjast upp úr 2011 og einungis 20% heimila árið 2015 þurfa 100 Mb/s og á sama tíma 20% heimila þurfa 6 Mb/s. Árið 2020 skv. TFI munu 68% heimila þurfa 100 Mb/s og önnur þurfa minna.
  • Þar sem Ljósnetið gerir Símanum kleift að bjóða upp á allt að 100 Mb/s mun sú tækni uppfylla þarfir neytenda að minnsta kosti næstu 10 árin skv. spá TFI.
  • Síminn býður upp á ljósnet í nýjum hverfum frá 2008 yfir GPON aðgangstækni og getur boðið í dag upp á allt að 1.024 Mb/s þó slíkt sé umfram þarfir sem viðskiptavinir Símans hafa næstu árin.

Mynd: Þróun gagnaflutningsgetu aðgangstækni Símans yfir kopar 1996-2011:



Mynd: Bandvíddarþörf heimila 2007-2013

 

 


« Til baka

Aðrir vefir