Fréttir

03.06.2010 | 23:30

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

„Ég ætla að hringja í alla sem ég þekki“

Highslide JS

Síminn hvetur alla viðskiptavini sína sem eiga heimasíma að hringja án endurgjalds í vini og kunningja í útlöndum á laugardag og sunnudag. Tilgangurinn er að vekja athygli á átakinu „Inspired by Iceland“ sem er markaðsátak íslenskra stjórnvalda og ferðaþjónustunnar á erlendum mörkuðum. Gildir einu hvort hringt er í erlent heimasíma- eða farsímanúmer, símtalið er ókeypis. 

Stjórnvöld og Ferðaþjónustan hafa hrint af stað þjóðarátaki þar sem þjóðin er hvött til þess að senda myndband um allan heim og vill Síminn styðja við þetta spennandi  átak með því að hvetja viðskiptavini sína til þess að hringja án endurgjalds í alla sem þeir þekkja í útlöndum.  Þannig geta þeir vakið athygli á átakinu, sagt frá hinu frábæra myndbandi sem sýnir Ísland í sinni bestu mynd og hvatt fólk til þess að sækja landið heim. 

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans; „Með þessu vill Síminn leggja sitt af mörkum til þess að átak Ferðaþjónustunnar beri árangur og að sem flestir Íslendingar geti tekið þátt í að koma skilaboðunum á framfæri enda þörfin mikil nú þegar eldgosið hefur valdið fækkun ferðamanna til landsins. Ég ætla sjálfur að koma mér vel fyrir heima um helgina og hringja í alla þá sem ég þekki í útlöndum og segja þeim að nú sé rétti tíminn til að heimsækja Ísland.“


« Til baka

Aðrir vefir