Fréttir

08.06.2010 | 15:53

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Síminn tekur þátt í Safetravel

Highslide JS

Síminn ásamt iðnaðarráðherra, lykilfyrirtækjum og -stofnunum sem leggja áherslu á öryggi undirritaði í dag samning vegna verkefnisins „Safetravel“ eða öryggi ferðamanna.  Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir verkefninu „Safetravel“ og er  markmið þess að koma á einn stað öllum upplýsingum frá þeim sem koma að ferðamálum og sinna forvarnarverkefnum. Ný heimasíða www.safetravel.is/www.safetravel.com fer í loftið af þessu tilefni og verður á fimm tungumálum auk íslensku auk þess sem gefið hefur verið út tímarit á þremur tungumálum. Tilgangurinn er sá að með samstilltu átaki er öllum öryggisupplýsingum komið á einn stað í stað þess að gefa út marga bæklinga og að ferðamenn verði þannig vel upplýstir um það hvernig ferðast má um landið með öryggið í fyrirrúmi.
 
Tímaritinu „Safetravel“ verður dreift á alla gesti sem koma með Norrænu, sett í alla bílaleigubíla og fæst á helstu ferðamiðstöðvum.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri, undirritaði samstarfssamning um „Safetravel“ í blíðviðrinu við Kleifarvatn í dag. „Síminn er í fararbroddi hvað varðar öryggi í fjarskiptum og hefur byggt upp stærsta dreifikerfi landsins í farsímaþjónustu en um er að ræða GSM, 3G og 3G langdrægt kerfi. 3G langdræga kerfið tekur við af NMT kerfinu sem verður lokað 1. september en það nýtist ferðmönnum sem fara ótroðnar slóðir, sjómönnum og þeim sem stunda siglingar. Það hefur orðið gríðarleg bylting í fjarskiptamálum hvað varðar öryggi hér á landi en hér áður þurfti fólk NMT síma til þess að geta verið í sambandi á hálendinu en nú dugar 3G síminn mjög víða og við erum alltaf að þétta netið og uppbyggingin er stöðug,“ segir Sævar Freyr.

 
Mynd 1. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, við undirskrift


Mynd 2. Safetravel hrint af stað við hverasvæðið hjá Kleifarvatni

 
Mynd 3. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans og Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar


« Til baka

Aðrir vefir