Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Lokað fyrir notkun Netlykla erlendis
Kostnaður við notkun Netlykla erlendis getur verið mjög hár og því hefur Síminn ákveðið að loka fyrir þess notkun frá og með miðnætti í kvöld. Hægt er að láta opna fyrir Netlyklinn með því að hringja í 800 7000 eða með því að mæta í næstu verslun Símans.
Þetta mun ekki hafa nein áhrif á notkun Netlyklanna hér á landi en með þessu þá vonumst við til þess að viðskiptavinir okkar séu meðvitaðari um kostnaðinn við útlandanotkun og fá ekki háa reikninga þegar þeir koma heim úr fríinu. Aðeins er átt við lokun á Netlyklum í áskrift, áfram er opið fyrir útlandanotkun í 3G NetFrelsi.
