Fréttir

05.07.2010 | 12:01

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Viðskiptavinir varaðir við þegar gagnanotkun í farsíma nær ákveðnu þaki

Highslide JS

Síminn hefur hannað sérstakt GPRS vöktunarkerfi til þess að vakta netnotkun viðskiptavina sinna sem ferðast á Evrópska efnahagssvæðinu og varar þá við þegar 80% af kostnaðarþaki er náð. Þegar 100% af þaki er náð, þá er GPRS aftengt hjá viðskiptavini, nema hann hafi óskað eftir öðru. Kostnaðarþakið er 50 evrur.
 
Brugðið hefur við að farsímanotendur hafi farið töluvert yfir fyrirhugaða netnotkun í farsímanum þegar þeir dvelja erlendis og ekki gert sér grein fyrir kostnaði og undrast háa reikninga vegna gagnanotkunar þegar heim er komið.  Í dag verður nýtt GPRS vöktunarkerfi virkjað hjá Símanum sem vaktar netnotkun viðskiptavina Símans sem ferðast innan landa Evrópska efnahagssvæðisins og varar þá við þegar 80% af kostnaðarþaki er náð.   Þegar 100% af þaki er náð, þá er GPRS aftengt hjá viðskiptavini, nema hann hafi óskað eftir öðru. Reikningur viðskiptavina Símans fer því aldrei yfir 50 evrur sem samsvarar um 8000 krónum.

Jafnframt þessu, hefur Síminn virkjað gjaldfrjálst þjónustusímanúmer (550-9200) ásamt því að móttekin talskilaboð eru gjaldfrjáls frá EU/EES svæðinu. Þá hófust í morgun SMS sendingar til viðskiptavina Símans sem ferðast til Evrópska efnahagssvæðisins með ýmssum nytsömum upplýsingum s.s. verðum, þjónustusímanúmerum o.fl.   Allir viðskiptavinir Símans fá þessi skilaboð skömmu eftir að lent er í löndum innan Evrópska efnahagssvæðinu og kveikt hefur verið á símtæki.
 
Þetta er gert vegna reglna á GPRS í reiki  sem Evrópusambandið gerir öllum símafélögum að fara eftir frá og með 1. júlí 2010.


« Til baka

Aðrir vefir