Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Nýtt gagnvirkt 3G dreifikort
Á siminn.is er nú að finna nýtt gagnvirkt kort af 3G farsímadreifikerfi Símans. Kortið er mjög nákvæmt landakort og á því geta notendur fundið upplýsingar um hvar á landinu Síminn býður upp á 3G samband.
Hægt er að leita eftir mismunandi staðsetningum eða heimilisföngum á landinu og fá upplýsingar um hvort 3G eða 3GL samband sé á viðkomandi stað og hvernig samband næst. Leitarniðurstöðurnar birtast bæði í leitarglugga og sem upplýsingabóla inni á kortinu.
