Fréttir

29.12.2011 | 14:25

Jólasalan jafngóð nú og fyrir jólin 2007

Highslide JS

Snjallsímar voru mestseldu símarnir hjá Símanum fyrir þessi jól eða 67% allra seldra tækja. Þegar fjöldi seldra síma er skoðaður samanborið við síðust ár kemur í ljós að jafnmargir símar seldust nú og árið 2007 og ennfremur var meðalverð þeirra síma sem seldust mest fyrir þessi jól u.þ.b. tvöfalt hærra miðað við árið 2007.

Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans: „Það hlýtur að teljast til tíðinda að fyrir þessi jól seldust jafnmargir símar og fyrir jólin 2007 og við fáum ekki betur séð en að fólk hafi verið tilbúið að eyða meiri fjármunum í símana nú en þá. Tækin hafa vissulega hækkað í innkaupaverði vegna veikari krónu í dag og eru því dýrari og það er líklega hluti af skýringunni. Spjaldtölvur voru vinsælar fyrir þessi jól en við segjum hiklaust að snjallsímar hafi verið jólagjöfin í ár.  Við sjáum gríðarlegan vöxt í seldum snjallsímum frá því í fyrra en þá var hlutfall snjallsíma 33%, var núna 67%. Snjallsímar fást á ýmsu verði en það vekur athygli okkar að sá sími sem var í öðru sæti hjá okkur yfir mestu seldu símana er Samsung Galaxy S II og  kostar tæplega 100.000 kr.“

Þess má geta að vöxtur í sölu á Android snjallsímum var  meira en þrefaldur á milli ára, í fyrra nam hlutfall þeirra 15% en var 56% þessi jólin. Þegar þessi mikli vöxtur á sölu á snjallsímum er skoðaður í samhengi við netnotkun fólks má ætla að flutningur á gagnamagni aukist mikið á næstu misserum og því mikilvægt að fólk hugi að því að ná sér í hagkvæma áskriftarpakka fyrir netið í símann og geti þannig vafrað án þess að hafa áhyggjur af bakreikningi.

 


« Til baka

Aðrir vefir