Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Er 3G samband í geimnum?
Síminn, í samstarfi við Verkfræðideild HR og CCP ætla að senda geimfar 100.000 fet upp í loftið.
Geimfarið er fest við helíumblöðru og verður vopnað þremur GoPro HD upptökuvélum auk Samsung Galaxy Note snjallsíma sem mun streyma ferðalaginu í beinni útsendingu í gegn um 3G net Símans.
Við erum gríðarlega spennt fyrir þessari tilraun og munum sitja límd við tölvuskjáinn til að sjá hvernig geimskipinu mun vegna.
Ferðalagið hefst við Reykjavíkurhöfn klukkan 12 í dag. Nánari upplýsingar og beina útsendingu má finna hér.
Endilega takið þátt í umræðunni á Twitter með því að merkja innleggin #skywardsphere.
