Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Síminn selur eignarlóð í Gufunesi_
Almennt útboð vegna sölu landsins var
auglýst í fyrri hluta desember og þegar tilboð voru opnuð 22. desember
reyndist ofangreint tilboð vera það hagstæðasta.
Fjarskiptaþjónustan í Gufunesi hefur verið starfrækt frá því á miðjum
þriðja áratugnum og hefur stærsti hluti landsins verið nýttur undir möstur
og viðtökuloftnet sem tengjast rekstrinum. Framþróun á tæknisviðinu hefur
gert það kleift að flytja má nær öll möstrin af svæðinu og gefst því kostur
á að selja stærsta hluta landsins.
Heildarstærð lóðarinnar er 11,7 hektarar en þar sem Fjarskiptaþjónustan í
Gufunesi verður starfrækt áfram á núverandi stað mun Síminn halda hluta
lóðarinnar eftir, eða 5.700 fm, undir þá starfsemi og hugsanlega
stækkunarmöguleika hennar.
Landið liggur í miðju Borgarholtinu, í hjarta blómlegrar íbúðarbyggðar, en
þar sem deiliskipulag svæðisins liggur ekki fyrir er ekki hægt með vissu að
segja til um hvers konar byggð muni rísa þarna í framtíðinni. Engu að síður
er ljóst að landið er verðmætt byggingaland og staðfesti þátttakan í
útboðinu það.
Á næstu dögum verður gengið frá kaupsamningi vegna sölunnar og í kjölfarið
öðlast kaupandinn rétt til að hefja vinnu við deiliskipulag svæðisins í
samráði við Borgarskipulag Reykjavíkurborgar. Landið er þó selt með
ákveðnum skilyrðum sem tryggja að nýtingarmöguleikar þess hluta sem Síminn
mun halda eftir verði ekki skertir og að starfsöryggi
Fjarskiptaþjónustunnar verði tryggt í hvívetna.
