Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Boðuð verðskrárbreyting kemur til framkvæmda_
Verð fyrir afnotagjald síma er ákveðið af Póst- og fjarskiptastofnun að
teknu tilliti til kostnaðar við tengigrindur, línukort og heimtaugar, þ.e.
símalínurnar sem liggja inn á öll heimili og fyrirtæki í landinu. Vegna
nýrra fjarskiptalaga sem eru í anda EES samningsins er kveðið skýrt um það
að fjarskiptafyrirtæki eigi að færa verðskrá sína til samræmis við
raunkostnað, þannig að hægt sé að opna fyrir aðgang keppinauta að
heimtauginni og efla samkeppni.
Þetta er síðari áfangi hækkunar sem Póst- fjarskiptastofnun ákvað á
síðasta ári, og sem ítarlega var fjallað um á fréttamannafundi og í
tilkynningu frá Símanum 29. mars 2000. Fyrri hluti hækkunarinnar kom til
framkvæmda 1. apríl 2000 en sá síðari 1. janúar 2001. Reyndar var gert ráð
fyrir því í fyrra að fastagjald heimilissíma myndi hækka nokkru meira í
ársbyrjun 2001 en raun hefur á orðið og verða 1.111 krónur á mánuði. Síminn
telur að fyrri ákvörðun eigi að gilda en Póst- og fjarskiptastofnun ákvað
að nýtt mánaðargjald skyldi verða 1.068 krónur. Verið er að fjalla frekar
um málið og niðurstöðu er að vænta fljótlega.
Fjöldi viðskiptavina Símans hefur notfært sér margvíslegar áskriftar- og
sparnaðarleiðir sem kynntar voru snemma á nýliðnu ári og hafa dregið
verulega úr áhrifum gjaldskrárbreytinga í heimilisbókhaldi viðkomandi.
Ástæða er til að vekja enn frekari athygli á þessum sparnaðarleiðum, t.d.
léttáskrift, gagnaáskrift, ,,vinum og vandamönnum innanlands"", ,,vinum og
vandamönnum erlendis"", internetsparnaði og posakjörum.
Þá var ákveðið sl. vor, í samráði við samtök aldraðra og öryrkja, að
allir viðskiptavinir eldri en 67 ára og allir örorkulífeyrisþegar gætu
fengið 20% afslátt af fastagjaldi grunnáskriftar.
Hægt er að skrá sig í sparnaðarleiðirnar á Þínum síðum á heimasíðu Símans
eða hjá þjónustuveri í síma 800 7000.
"
