Fréttir

12.01.2001 | 17:17

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Breytt verðskrá hjá 118 og talsambandi við útlönd_

Fyrrgreind hækkun felst í því að upphafsgjald fer úr 15 kr. í kr. 27 en

mínútugjald helst óbreytt en það er kr. 49,90. Hægt verður að fá

áframtengingu fyrir 3 kr. en hún hefur hingað til kostað 19 krónur

aukalega. Ef upphafsgjald og áframtenging er lagt saman lækkar það úr 34

krónum í 30 við þessa breytingu.



GSM-notendur eru orðnir stór hluti viðskiptavina 118 og hentar þeim einkar

vel að fá beint samband, ekki hvað síst úti í umferðinni. Áframtengingin

eykur óneitanlega öryggi í umferðinni þar sem bílstjórinn þarf ekki að

skrifa hjá sér númerið sem hann er að spyrja um heldur getur fengið samband

strax. Með því að færa verð áframtengingarinnar niður í 2 krónur heldur

Síminn því áfram að stuðla að bættu umferðaröryggi en jólagjöf Símans til

lögreglunnar í Reykjavík var einmitt handfrjáls búnaður sem eykur einnig

öryggi í umferðinni. Síminn mun halda áfram að einfalda viðskiptavinum

sínum að nýta sér þjónustu 118 og verður innan skamms boðið uppá SMS

skilboðaþjónustu fyrir þá viðskiptavini GSM sem vilja fá númerin send til

sín. Sú þjónusta verður virk í lok janúar.



Samhliða þessu breytist verðskrá talsambands við útlönd. Meðalsímtal við

talsambandið er tæpar 2 mínútur og eftir breytinguna verður það á 340

krónur en kostar nú 153 krónur. Upphafsgjaldið hækkar úr 30 krónum í 60

krónur og mínútugjald úr 66 krónum í 150 krónur. Mikið tap hefur verið á

þessari handvirku þjónustu og hækkanir því nauðsynlegar til þess að hægt sé

að veita þessa þjónustu áfram. Til þess að ná fram aukinni hagræðingu hefur

Síminn samið við Tele Danmark sem mun sjá um að veita upplýsingar um erlend

símanúmer á kvöldin og um nætur.



Landssíminn 12. janúar 2001




« Til baka

Aðrir vefir