Fréttir

31.01.2001 | 17:20

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Afnotagjöld boðkerfis felld niður_

 Væntanlega verður það að nokkrum mánuðum liðnum.

Notendur boðkerfisins hafa á undanförnum mánuðum verið að flytja notkun

sína yfir í SMS-þjónustu GSM-kerfisins. Í lok febrúar er búist við að lokið

verði við uppsetningu á nauðsynlegum búnaði fyrir SMS-þjónustu í

NMT-kerfinu. Þeir sem búa utan þjónustusvæðis GSM ættu þá að geta flutt sig

yfir í SMS-þjónustu NMT-kerfisins.

Sú reynsla sem fengist hefur af boðun með SMS er mjög góð og ekki hafa

komið upp nein stór vandamál. Hún hefur marga kosti umfram skilaboð í

gegnum boðkerfið m.a. þá er kerfið hraðvirkara og afkastameira, skilaboð

eru skýrari, hægt er að fá upplýsingar um það hverjir hafa fengið boðin og

hægt er að kvitta fyrir móttöku skilaboðanna.

Neyðarlínan og Síminn hafa verið í samstarfi um uppbyggingu útkallskerfis

fyrir viðbragðsaðila og mun Neyðarlínan taka að sér útkallsþjónustu fyrir

þessa aðila.


« Til baka

Aðrir vefir