Fréttir

05.12.2006 | 08:35

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Þú í útlöndum

Til þess að koma til móts við vaxandi notkun farsíma í útlöndum hefur Síminn ákveðið að breyta verði á símtölum til Íslands. Viðskiptavinir Símans greiða 137 króna tengigjald í upphafi en eftir það 11 krónur á mínútuna sem er innanlandstaxti.

"Nú geta viðskiptavinir Símans hringt á sama verði í útlöndum og hér heima með nýrri áskriftarleið. Þjónustan hefur þegar verið tekin í notkun og mun hún gilda í 20 löndum auk Íslands en símtöl frá þessum löndum nema tæplega 80% af öllum GSM-símtölum Íslendinga frá útlöndum. Með þessum hætti geta viðskiptavinir Símans sem staddir eru í Þýskalandi sparað allt að 43% og viðskiptavinir í Bretlandi um 66% ef miðað er við þriggja mínútna símtal," segir Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá Símanum.

Nýja áskriftarleiðin mun stórlækka símareikning þeirra sem eru mikið á ferðinni. Ekki þarf að greiða sérstakt mánaðargjald fyrir áskriftina en hún er í boði bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Til þess að nýta þjónustuna þurfa viðskiptavinir að vera með símanúmer í Betri leið í GSM hjá Símanum eða í hópáskrift. Áskriftin gildir fyrir símtöl til Íslands og einnig innan þess lands sem viðskiptavinur Símans er staddur í.

Áskriftin gildir í 20 helstu viðskiptalöndum Íslendinga. Viðskiptavinir okkar þurfa ekki að kynna sér mismunandi verðskrár erlendra þjónustuaðila heldur tryggir Síminn sama verð hjá öllum þjónustuaðilum viðkomandi landa.

Allar nánari upplýsingar um þjónustuna eru aðgengilegar á siminn.is


« Til baka




Vefhlutar

Aðrir vefir