Fréttir

06.12.2006 | 13:57

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Fjarvinnulausnir Símans

Síminn býður fyrirtækjum góðar fjarvinnulausnir sem henta vel þeim sem vilja bjóða starfsmönnum sínum upp á að vinna hvar sem er í sama umhverfi og þeir hafa á vinnustað. Þannig geta starfsmenn unnið á innra neti fyrirtækisins hvar sem þeir eru staddir, svo framarlega sem þeir eru tengdir Internetinu.

Starfsmenn þurfa að hafa uppsettan svokallaðan VPN-hugbúnað í tölvunni sem þeir nota til að tengjast innra netinu. Hvert fyrirtæki fær sérstakt auðkenni ásamt því að hver starfsmaður fyrirtækisins fær sitt auðkenni og lykilorð. Helsti kostur VPN-hugbúnaðarins er hversu einfaldur hann er i notkun. Tengingin er mjög örugg og engin hætta er á því að óviðkomandi aðilar komist inn á viðkvæm gögn í tölvunni.

VPN-búnaður er ódýr lausn sem sér til þess að starfsmenn geta ávallt verið tengdir vinnustað sínum auk þess sem fyrirtæki sleppa við að sjá um tengingarnar sjálf. Fyrirtækið þarf starfsstöðvatengingu inn á IP-net Símans, þjónustutengingu í Internetgátt Símans, Internetáskrift fyrir starfsmenn hjá Símanum og þjónustutengingu í VPN-gátt Símans.

Með fjarvinnulausnum fylgir uppsetning á stafrænu sjónvarpi Símans þar sem starfsmenn hafa aðgang að allt að 60 sjónvarpsrásum og gagnvirkri bíóþjónustu, SkjáBíói með fjölda bíómynda og þátta. Þannig geta fyrirtækin séð vel um þarfir starfsmanna sinna. Sveigjanleiki er í gjaldtöku þannig að hluti reikningsins, svokallaður grunnpakki, fer til fyrirtækjanna. Síðan geta starfsmenn bætt við grunnpakkann til dæmis auknum hraða, niðurhali, og áskriftarsjónvarpi sem fer þá á símareikning starfsmanna.

Viðskiptavinir geta valið á milli ADSL 1000, 2000, 8000 og 12000 og viðeigandi stækkunarmöguleika en frekari upplýsingar um það eru á heimasíðu Símans.


« Til baka




Vefhlutar

Aðrir vefir