Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Fjármálaupplýsingar með SMS-Markaðsvakt Símans
Með SMS-Markaðsvakt Símans getur athafnafólk fengið fjármálaupplýsingar sendar beint í GSM-símann sinn. Gagnagrunnurinn er tengdur beint við Kauphöll Íslands og þannig er mögulegt að fylgjast með í rauntíma hvenær breytingar gerast á markaði. Viðskiptavinir geta skilgreint fyrirfram upplýsingarnar sem þeir vilja fá sendar. Um leið og einhverjar breytingar eiga sér stað fá viðskiptavinir Símans þær sendar sem SMS í símann sinn. Markaðsvaktin gerir viðskiptavinum Símans auðveldara fyrir að fylgjast með breytingum á meðan þeir eru í útlöndum í fríi eða á fundum og bregðast við breytingum sem verða á markaði.
Þjónustan skiptist í fimm flokka:
- Markaðsvaktin gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með því helsta sem gerist á fjármálamarkaðnum á hverjum degi. Sendir eru daglegir listar sem sýna 5 mestu hækkanir og lækkanir hverju sinni.
- Fréttavakt gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með öllu því markverðasta sem gerist í Kauphöll Íslands. Um leið og Kauphöllin gefur frá sér tilkynningu kemur SMS í símann með fyrirsögn fréttar, flokki hennar og auðkenni þeirra félaga sem hún tengist.
- Gjaldeyrisvaktin gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með og fá upplýsingar um gjaldeyrisviðskipti. Hún færir upplýsingar um stöðu gengisvísitölu krónunnar auk þess að birta gengi helstu gjaldmiðla.
- Vísitöluvaktin veitir upplýsingar um stöðu úrvals- og aðalvísitölu Kauphallar Íslands. Upplýsingar um stöðu þeirra eru sendar daglega ásamt prósentubreytingu dagsins, frá áramótum og síðustu 12 mánuði.
- Verðbréfavaktin lætur vita um allar meiriháttar breytingar á gengi viðkomandi verðbréfs og sendir allar fréttir sem tengjast félaginu.
Hægt er að skrá sig fyrir SMS-Markaðsvaktinni á siminn.is
