Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Síminn breytir tímamælingum og einfaldar verðskrá
Síminn hefur frá og með deginum í dag ákveðið að breyta nokkrum liðum í verðskrá sinni með eftirfarandi hætti. Símtöl úr talsíma á einstaklingsmarkaði verða mæld í þrepum en ekki í sekúndum eins og verið hefur. Mældar verða fyrstu 20 sekúndurnar fyrir símtöl úr fastlínu hjá Símanum og þar eftir í 10 sekúndna þrepum. Samhliða því mun upphafsgjald í talsímakerfinu breytast úr 4,75 kr. í 4,95 kr. Mínútuverð í talsímakerfinu breytist úr 1,65 í 1,75 kr. Áhrif þessara breytinga er að meðalsímreikningurinn fyrir fastlínusímtöl hækkar um 3,2%.
Síminn mun á sama tíma gera breytingar á tímamælingum í GSM á milli kerfa á einstaklingsmarkaði. Hér eftir verður sama mæling innan og milli kerfa sem felst í því að fyrsta mínútan í GSM-símtölum er gjaldfærð og eftir það í 10 sekúndna þrepum. Símtöl á fyrirtækjamarkaði eru ennþá sekúndumæld.
Þann 1. janúar 2007 mun síðan taka í gildi 50 kr. hækkun á föstu mánaðarverði almennu talsímaþjónustunnar úr 1.395 í 1.445 á einstaklingsmarkaði og GSM-þjónustu úr 600 í 650 kr.
Breytingarnar á verðskrá Símans miða að því að gera samanburð á gjaldtöku við samkeppnisaðila sína einfaldari og skýrari ásamt því að mæta þeim kostnaði sem 7% verðlagsþróun hefur lagt á rekstur fyrirtækisins þetta ár.
Síminn mun áfram kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum pakkalausnir fyrir þeirra þarfir. Með Betri leiðum í Interneti, Betri leiðum í GSM og fjölskylduáskriftinni hefur verið tekið skref í átt að raða saman í pakka þjónustum og inniföldum mínútum sem henta ólíkum notkunarmynstrum. Nú þegar þegar eru komnar yfir 11 þúsund nýskráningar í Betri leiðir Símans.
