Fréttir

15.12.2006 | 15:53

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Þráðlaus Internetaðgangur um allan heim með iPass-forritinu

Síminn mun bráðlega bjóða viðskiptavinum sínum aðgang að forriti sem nefnist iPass. Með forritið í tölvunni geta viðskiptavinir Símans á ferðalagi erlendis tengt sig inn á þráðlaust Internet svo að segja hvar sem er með lágmarkstilkostnaði. Með auknum viðskiptaferðum sem skapast vegna útrásar Íslendinga eykst þörfin fyrir að vera í öruggu þráðlausu sambandi hvar sem er í heiminum.

"Forritið gerir alla gjaldtöku einfalda þar sem greitt er fyrir þjónustuna á símareikningi heima á Íslandi. Viðskiptavinir Símans þurfa því aldrei að hafa áhyggjur af því hvar þeir kaupi aðgang að Internetinu til dæmis í formi skafkorta," segir Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá Símanum. Með forritinu fá viðskiptavinir aðgang að víðtæku dreifikerfi iPass sem nær til yfir 61 þúsund staði víðsvegar um heiminn. Þar að auki er iPass-tenging í boði á 74 af 100 helstu flugvöllum heims og í heild á 357 flugvöllum á heimsvísu.

"Þjónustan er einföld, ódýr í notkun og greitt er fyrir hana í einu lagi á símareikning. Sótt er um aðgang að iPass með því að hringja í þjónustuver Símans í síma 800 7000 eða senda tölvupóst á 8007000@siminn.is. Síðan verður nóg að hlaða forritinu niður af vef Símans og það setur sig sjálfkrafa upp. Ef upp koma vandamál eða viðskiptavinir þurfa aðstoð við að setja forritið upp þá er hægt að hringja í síma 800 7000 eða koma með tölvuna í verslun Símans í Ármúla 27 og láta sérfræðinga okkar setja það upp. Fyrirtæki í sömu erindagjörðum geta haft samband við 800 4000. Þjónustan verður aðgengileg í upphafi næsta árs," segir Eva.

Til þess að tengjast er forritið ræst og sama aðgangs- og lykilorð skráð og notað er til að tengjast Internetinu heima. Þegar komið er að því að nota forritið er valið land og borg og þá birtast allar mögulegar tengingar fyrir Internetið.

Kostir þessarar þjónustu eru ótvíræðir, forritið heldur utanum tengitímann og einungis er gjaldfært fyrir þann tíma sem viðskiptavinurinn er tengdur. Þessi kostur hentar ákaflega vel þeim notendum sem þurfa á áreiðanlegu sambandi að halda á ferðalögum en iPass velur einungis trausta aðila í samstarf.


« Til baka

Aðrir vefir