Fréttir

17.12.2006 | 17:19

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Einangrunarbilun í Cantat-3

Að kvöldi 16. desember bilaði Cantat-3 sæstrengurinn, sem liggur frá Kanada til Bretlands, Danmerkur og Þýskalands, með greiningum til Íslands og Færeyja. Bilun þessi olli rofi á allri fjarskiptaumferð um Cantat-3.
Bilanagreining bendir til að um svokallaða einangrunarbilun sé að ræða, sem veldur því að ekki er hægt að flytja rafmagn til að fæða búnað á strengnum. Bilunin er milli Íslands og Kanada, u.þ.b. 1500 km vestur af Íslandi, á um 3000 m dýpi. Þó að reynt verði að koma á sambandi til bráðabirgða er líklegt er að kalla þurfi til viðgerðarskip til að gera við bilunina, þannig að hugsanlegt er að Cantat-3 strengurinn verði þá óvirkur í 2-3 vikur.

Viðskiptavinir Farice á Íslandi og í Færeyjum hafa notað báða sæstrengina; Farice-1 og Cantat-3 fyrir flutning fjarskiptaumferðar sinnar og eru truflanir af völdum bilunarinnar því ekki mjög alvarlegar hjá þeim, en þó má búast við hægari Internetumferð. Hins vegar má búast við að aðrir þjónustuaðilar, sem einungis hafa notað Cantat-3 fyrir umferð sína, verði fyrir verulegum truflunum og jafnvel algjöru rofi þangað til viðgerð hefur farið fram." segir í tilkynningu Farice.

Síminn hefur þegar bætt við bandbreidd sína á Farice og mun auka bandbreiddina enn frekar til þess að geta veitt viðskiptavinum sínum þjónustu. Reiknað er með því að takist að auka bandbreiddina enn frekar á næstu dögum ef nauðsyn krefur.


« Til baka

Aðrir vefir