Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Internetsambönd í eðlilegt horf á ný
Bráðabirgðaviðgerð á vesturhluta Cantat-3 sæstrengsins, á milli Íslands og Kanada er lokið. Fyrr í kvöld lauk bráðabirgðaviðgerð á austurhluta strengsins. Cantat -3 strengurinn bilaði um miðmætti í nótt og hafði það einhver áhrif á Internetsambönd. Talið er að bilunin sé í eingrun á strengnum milli Kanada og Íslands. Fullnaðarviðgerð fer fram síðar en Internetsamband er komið í eðlilegt horf á ný.
