Um Símann
Við auðgum lífið
Síminn hefur áhrif á líf allra landsmanna á degi hverjum og er talinn eitt traustasta fyrirtæki landsins. Síminn hefur það að markmiði að koma á tryggara sambandi við viðskiptavini sína með því að uppfylla þarfir þeirra.
Í því felst að fræða viðskiptavinina, leiðbeina þeim og veita ráðgjöf. Síminn aðstoðar viðskiptavini með þeim hætti að vörur og þjónusta fyrirtækisins nýtist þeim sem allra best og eru nýjustu lausnir á sviði talsíma, farsíma og gagnaflutnings sem og einstaklingsmiðaðar lausnir ávallt í forgrunni. Síminn er í einstakri aðstöðu til að bjóða viðskiptavinum sínum kosti sem veita ánægju í daglegu lífi, leik og starfi, en um það snýst staðsetning Símans á markaði – að auðga líf viðskiptavina sinna.
