Fræðslustefna

Það er stefna Símans að bjóða starfsfólki sínu ávallt bestu fræðslu sem völ er á hverju sinni. Hver starfsmaður er ábyrgur fyrir því að viðhalda eigin þekkingu og því nauðsynlegt að hann fylgist vel með því sem í boði er.

Starfsþróun

Það er stefna Símans að gefa starfsmönnum kost á að þróast í starfi innan félagins. Slíkt er báðum aðilum í hag, starfsmaður eykur við reynslu sína og félagið nýtur krafta starfsmannsins lengur en ella. Starfsþróun er sameiginlegt verkefni starfsmanna og Símans, bestu möguleikarnir fást með framúrskarandi frammistöðu og frumkvæði í starfi.

Um fræðslu og þjálfun hjá Símanum

Markmið með fræðslu og þjálfun er að efla þekkingu, hæfni og fagleg vinnubrögð meðal starfsmanna félagsins til að uppfylla loforðið um fræðslu og leiðsögn til viðskiptavina. Allir starfsmenn eiga því að hafa grunnþekkingu á stefnu, skipulagi, boðleiðum, dreifileiðum, vörum og þjónustu Símans.

  • Síminn leggur áherslu á að öll fræðsla og þjálfun starfsmanna endurspegli Áttavitann og gildin.
  • Stuðlað er að því að hjá Símanum starfi velþjálfað, menntað, áhugasamt og heilbrigt starfsfólk sem hefur gildi félagsins að leiðarljósi við störf sín.
  • Stjórnendur bera ábyrgð á því að starfsmenn þeirra eigi kost á að sækja þá menntun sem til þarf til þess að sinna störfum sínum, séu ánægðir og geti þróast í starfi.
  • Að efla símenntun meðal allra starfsmanna Símans. Að virkja sköpunarkraft og frumkvæði starfsmanna og færni þeirra til að vinna í þágu félagsins og stefnu þess.
  • Að stuðla að opnu upplýsingaflæði innan fyrirtækisins því vel upplýst starfsfólk er virkara og áhugasamara í starfi, eykur samkeppnishæfni og hagnað félagsins og bætir jákvæða ímynd þess í huga almennings.



Vefhlutar

Aðrir vefir