Starfsmannastefna Símans

Síminn sækist eftir hæfu og traustu starfsfólki, sem vill vinna af heilindum og eldmóði með einfaldleika og lipurð að leiðarljósi.

  1. Laða að framúrskarandi starfsfólk
    Unnið er eftir skilgreindu og faglegu ráðningaferli þegar aflað er nýrra starfsmanna hjá félaginu. Þar njóta allir umsækjendur jafnræðis og starfsmannaval byggt á sanngjörnu mati tengdu hæfniskröfum sem gerðar eru hverju sinni.


  2. Fræðsla og upplýsingamiðlun til að auka færni
    Það er stefna Símans að bjóða starfsfólki sínu hágæða fræðslu til að auka færni sína í starfi. Hver starfsmaður er ábyrgur fyrir því að viðhalda eigin þekkingu og því nauðsynlegt að hann fylgist vel með því sem í boði er. Rík áhersla er lögð á að starfsmenn fái upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins fljótt og örugglega frá næsta yfirmanni eða á innraneti Símans.


  3. Starfsþróun til að takast á við ný verkefni
    Það er stefna Símans að gefa starfsmönnum kost á að þróast í starfi innan félagins. Slíkt er báðum aðilum í hag, starfsmaður eykur við reynslu sína og félagið nýtur krafta starfsmannsins lengur en ella. Starfsþróun er sameiginlegt verkefni starfsmanna og Símans, en bestu möguleikarnir fást með framúrskarandi frammistöðu og frumkvæði í starfi.


  4. Hvetjandi og nærandi starfsumhverfi
    Leitast er við að hafa vinnuumhverfi, tæki og aðbúnað starfsmanna hvetjandi og aðlaðandi. Starfsmenn vinna almennt í opnu umhverfi sem styttir boðleiðir. Síminn mælir viðhorf starfsmanna til vinnustaðarins með markvissum hætti og notar niðurstöðurnar til umbóta. Starfsfólki stendur til boða fjölbreytt, fljótleg, holl og hagkvæm næring á þeim vinnustöðum þar sem eldhús eru staðsett. Rík áhersla er lögð á heilsuvernd og öryggi starfsmanna svo að vinnuumhverfið fullnægi kröfum um vinnuvernd.


  5. Snerpa til að tryggja samkeppnishæfni
    Samkeppnisumhverfi Símans kallar á að fyrirtækið sýni snerpu og lagi sig fljótt að breyttum þörfum viðskiptavina. Skipulag starfseininga og verkefni starfsmanna taka breytingum í því skyni. Síminn gerir kröfu til starfsmanna um að þeir sýni sveigjanleika og aðlögunarhæfni til að takast á við ný verkefni. Síminn leggur áherslu á að vanda til verka svo breytingar gangi hratt og vel fyrir sig.


  6. Jöfn tækifæri, jafnvægi og góður vinnuandi
    Stuðlað er að jafnrétti starfsmanna til launa og starfstækifæra, samræmingu starfs og fjölskyldulífs, góðum starfsanda og jákvæðum, uppbyggjandi samskiptum milli samstarfsmanna.


  7. Starfskjör í samræmi við frammistöðu
    Lögð er áhersla á virka frammistöðustjórnun hjá félaginu. Starfsmönnum er veitt endurgjöf í störfum sínum og þeir hvattir til að gera sífellt betur. Því er fagnað sem vel er gert og talað er hreint út um vandamál sem upp koma. Starfskjör og hlunnindi taka mið af eðli starfs, ábyrgð, álagi, frammistöðu og markaðsaðstæðum.


  8. Stjórnendur í fremstu röð
    Síminn gerir miklar kröfur til stjórnenda sinna um að þeir sýni fagmennsku, viðskiptavitund og leiðtogahæfni. Starfsmannasvið veitir stjórnendum stuðning við að takast á við síbreytilegt starfsumhverfi Símans með því að setja skýr árangursviðmið og veita ráðgjöf og þjálfun í stjórnun.



Vefhlutar

Aðrir vefir