Störf í boði

Hafir þú áhuga á að starfa fyrir Símann þá fylltu út almenna starfsumsókn eða sæktu um laust starf. Vinsamlega athugið að fylla þarf út umsóknarform hér á vefnum þegar sótt er um starf. Hægt er að senda ferilskrá sem viðhengi með umsókn.

Yfirlit yfir lausar stöður

Sérfræðingur í Salesforce

21.05.2013

Starfsheiti: Sérfræðingur
Sérfræðingur í Salesforce

Sérfræðingur í Saleforce

Síminn óskar eftir að ráða kraftmikinn sérfræðing til að vinna í öflugu teymi hugbúnaðarþróunar. Starfið felur í sér vinnu við uppsetningar og stillingar á fyrirfram skilgreindum kerfiseiningum og forritun á sérlausnum í Salesforce CRM kerfi Símans með Apex. Teymið tekur þátt í fjölmörgum spennandi verkefnum sem tengjast öllum helstu vörum Símans. Notast er við Agile aðferðafræði við lausn verkefna.

Íboði er mjög góð vinnuaðstaða, sveigjanlegur vinnutími og vinna með metnaðarfullu teymi sem hefur léttleika og skemmtilegheit í fyrirrúmi við störf sín.

Menntun og reynsla

  • Háskólamenntun sem nýstist í starfi
  • Góð reynsla af vinnu við CRM kerfi
  • Þekking á helstu hugtökum CRM

Persónulegir eiginleikar

  • Kraftur og frumkvæði
  • Samskiptalipurð og hæfni til að vinna í hópi
  • Vinnusemi og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulagshæfileikar og öguð vinnubrögð
  • Jákvæðni
  • Brennandi áhugi á tækni er mikil kostur

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí nk.

Viðskiptastjóri með tæknivit

17.05.2013

Starfsheiti: Viðskiptastjóri
Viðskiptastjóri með tæknivit

Síminn leitar að upplýsingatæknimiðuðum viðskiptastjóra til starfa í Reykjavík. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á þjónustu við stóra viðskiptavini Símans á fyrirtækjamarkaði. Starfið felur í sér sölu, kynningar og þarfagreiningu fyrir fyrirtæki, ásamt tilboðs- og samningagerð, ráðgjöf og eftirfylgni. Einnig sér hann um að afla og viðhalda viðskiptatengslum.

Menntun og reynsla

· Háskólapróf sem nýtist í starfi æskilegt

· Reynsla af sölu og ráðgjöf æskileg

· Þekking á íslensku viðskiptalífi skilyrði

· Innsæi og þekking á upplýsingatækni-

· og fjarskiptalausnum skilyrði

Persónueiginleikar

· Kraftur og frumkvæði

· Virðishugsun og rík þjónustulund

· Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til

· hópvinnu

· Markmiðasetning og frjó hugsun

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2013

Aðrir vefir