Í störfum okkar leggjum við áherslu á að hugsa til langs tíma og höfum hnattrænan samning Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð (Global Compact) að leiðarljósi. Við skiptum stefnu Símans varðandi samfélagslega ábyrgð í fjórar víddir: efnahagslega, lagalega, siðferðilega og góðgerðarmál. Í þessum fjórum víddum hugsum við störf okkar.
Síminn leggur áherslu á arðbæran rekstur en þó með samfélagslega ábyrgð sína að leiðarljósi. Stöðugt má leita leiða til að samræma ábyrgðina gagnvart samfélaginu og reksturinn með það að leiðarljósi að auka hagnað samfélagsins og fyrirtækisins.
Við störfum eftir lögum og reglum íslensks samfélags. Reksturinn er bundinn löggjöf sem setur starfseminni mörk í því skyni að mæta einstaklingsbundnum og sameiginlegum þörfum samfélagsins og standa vörð um hagsmuni almennings, jafnt vinnandi fólks og neytenda, sem og náttúrunnar og umhverfisins.
Siðareglur okkar segja til um hvernig við störfum og komum fram hvert við annað. Við tryggjum jafnan rétt allra til starfs, starfsþróunar og launa, og leggjum áherslu á að umgangast umhverfi okkar af virðingu, auk þess sem við tryggjum öryggi þjóðarinnar með því að standa fyrir rekstri öflugasta fjarskiptakerfi landsins.
Í störfum okkar sem miða að bættu samfélagi og samstarfsverkefnum ætlum við að tryggja að þeir sem starfa að mikilvægum góðgerðar- og líknarmálum njóti góðs af þekkingu okkar og hæfni og munum því leitast við að veita styrki út frá kjarnahæfni okkar.