Síminn Sport sýnir frá Enska boltanum og hægt er að kaupa staka áskrift á 4.500 krónur á mánuði. Stöðin verður aðgengileg á öllum dreifikerfum sem eru í notkun á Íslandi en hún verður aðgengileg á dreifikerfum Símans, Sýnar, Hringdu og Nova.
Með auknu samstarfi við Ensku úrvalsdeildina getur Síminn sýnt frá fleiri leikjum en á liðnu tímabili, boðið upp á útsendingar í ofurháskerpu ásamt vandaðri innlendri dagskrárgerð og skemmtilegum erlendum umfjöllunarþáttum.
Tómas Þór Þórðarson leiðir frábæran hóp sérfræðinga sem miðla reynslu og þekkingu til þjóðarinnar en þar sem stöðin er innifalin í Sjónvarpi Símans Premium má ætla að um 45.000 heimili verði með Enska boltann þegar flautað verður til leiks. Tómas Þór og Eiður Smári opna nýtt keppnistímabil í beinni útsendingu frá Anfield föstudaginn 9. ágúst.
„Það er mikil spenna og tilhlökkun fyrir Enska boltanum. Við ætlum að vanda til verks og það gleður okkur að sjá gríðarlegan áhuga landsmanna á þessari bestu deild í heimi. Starfsfólk Símans er við öllu búið og tekur vel á móti öllum þeim sem munu horfa á Símann Sport í vetur.” segir Bryndís Þóra Þórðardóttir vörustjóri Sjónvarp Símans.