1.1
Skilmálar þessir kveða á um réttindi og skyldur viðskiptavina Símans sem nýta sér Smáforrit (e. app) til að nálgast myndefni úr sjónvarpsþjónustu Símans. Almennir skilmálar Símans um fjarskiptaþjónustu gilda þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir. Stangist ákvæði þeirra og ákvæði þessara skilmála á, skulu ákvæði þessara skilmála ganga framar.
Ekki er unnt að nota þjónustuna utan Íslands. Skilmálar þessir gilda frá og með 31. maí 2018.
2.1
Við virkjun þjónustunnar Sjónvarp Símans appið, samþykkir viðskiptavinur neðangreinda skilmála og verð fyrir þjónustuna, eftir því sem við á.
Viðskiptavinir Símans geta sett upp smáforritið Sjónvarp Símans appið sér að kostnaðarlausu.
Í Sjónvarp Símans appinu hefur viðskiptavinur val um hvort hann horfi á afmarkað myndefni sem er í boði á hverjum tíma sér að kostnaðarlausu eða kaupi Premium aðgang í appinu sem veitir honum aðgang að sama myndefni og hann er áskrifandi að í sjónvarpsþjónustu Símans (IPTV þjónustu). Viðskiptavinir með farsímaþjónustu hjá Símanum geta notað þjónustuna „Þættir í símann“ án sérstaks endurgjalds að því gefnu að viðkomandi sé með gilda farsímaáskrift eða með skráð númer í fyrirframgreiddri farsímaþjónustu með reglulegum áfyllingum.
Til að virkja Premium aðgang í Sjónvarp Símans appinu þarf viðskiptavinur að vera áskrifandi að sjónvarpsþjónustu Símans.
Til þess að virkja „Þættir í símann“ þarf viðskiptavinur að hafa gilda farsímaáskrift eða hafa skráð númer í fyrirframgreiddri farsímaþjónustu með reglulegum áfyllingum. Segi viðskiptavinur upp farsímaáskrift hjá Símanum eða engin virkni verður á fyrirframgreiddri farsímaþjónustu í mánuð eða lengur, þá lokast fyrir aðgang að Þættir í símann.
Viðskiptavinur getur samskráð allt að 5 snjalltæki fyrir Premium aðgang að Sjónvarp Símans appinu og hægt er að horfa á eitt tæki í einu af skráðum snjalltækjum. Notkun á sjónvarpsþjónustu Símans (þ.e. myndlykli) er alveg óháð þeirri notkun. Notkun á þjónustunni „Þættir í símann“ er bundinn við eitt snjalltæki (spjaldtölvur eða snjallsíma) sem tengist viðkomandi farsímanúmeri.
Gagnamagn á farsímakerfum sem myndast við notkun á Sjónvarp Símans appinu, umfram innifalið gagnamagn í áskriftarleið viðskiptavinar, gjaldfærist samkvæmt verðskrá farsímafyrirtækis og niðurhal af internet þjónustu notanda er skráð innlent niðurhal.
Síminn ákveður einhliða hvaða myndefni er í boði í hvaða þjónustuþætti sem er aðgengilegur í gegnum app fyrir sjónvarpsþjónustu Símans. Getur Síminn ákveðið að fjarlægja myndefni úr þjónustunni án nokkurs fyrirvara eða tilkynningar.
Sjónvarpsþjónustu Símans er til til heimilis- og einkanota eingöngu. Öll miðlun á myndefni eða aðgangi til annarra aðila er með öllu óheimil sem og opinberrar dreifingar. Opinber dreifing telst t.d. til notkunar á veitingastöðum, gististöðum, líkamsræktarstöðvum o.s.frv.
„Síminn“ er smáforrit (e. app) sem Síminn hf. býður viðskiptavinum sínum að hlaða niður og nota án endurgjalds. Smáforritið er aðgengilegt á Google Play og í Apple App Store.
Smáforritið gerir notendum kleift að nálgast á einum stað yfirlit yfir notkun sína á tilgreindum þjónustum hjá Símanum, gjöld vegna þjónustu og jafnframt gert breytingar á tilgreindum þjónustum Símans sem notandi er skráður rétthafi að og/eða er greiðandi fyrir.
Varðandi meðferð persónuupplýsinga við notkun á smáforritinu vísast til persónuverndarstefnu lausnarinnar.
Með því að hlaða niður smáforritinu „Síminn“ (hér eftir nefnt „smáforritið“ eða „lausnin“) og skrá sig þar sem notandi og staðfesta að viðkomandi hafi kynnt sér, skilið og samþykkt neðangreinda skilmála hefur viðkomandi undirgengist skilmála Símans hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, 108 Reykjavík (hér eftir „Síminn“).
Notandi skal kynna sér vandlega skilmála þessa áður en stofnaður er aðgangur og er samþykkt skilmálanna forsenda þess að notandi megi nota smáforritið. Óski notandi eftir hliðræðu afriti af skilmálum þessum skal notandi koma slíkri beiðni á framfæri við Símann.
Skilmálarnir, eins og þeir eru hverju sinni, eru aðgengilegir í gegnum smáforritið Síminn og einnig birtir á vefsíðu Símans, www.siminn.is.
Almennir skilmálar Símans um fjarskipta-, internet-, farsíma- og sjónvarpsþjónustu, eins og þeir eru á hverjum tíma, gilda þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir. Skulu ákvæði þeirra gilda þar sem ekki er kveðið á um annað í skilmálum þessum. Almennir skilmálar Símans eru aðgengilegir á www.siminn.is. Ef misræmi er á milli skilmála þessa og skilmála Símans gilda ákvæði þessara skilmála.
Viðskiptavinir Símans geta hlaðið niður og sett upp smáforritið Síminn í snjalltæki sínu sér að kostnaðarlausu í gegnum Google Play eða Apple App Store.
Við stofnun notandaaðgangs í fyrsta sinn er notandi beðinn um að auðkenna sig, annað hvort með rafrænum skilríkjum eða með því að slá inn lykilorð sem notandi fær sent í smáskilaboðum. Athygli skal vakin á því að val notanda á auðkenningu hefur áhrif á það hvaða upplýsingar eru aðgengilegar notanda í smáforritinu, sbr. nánar grein 3 í skilmálum þessum.
Að auðkenningu lokinni er notandi beðinn um að staðfesta upplýsingar um sig sem skráðar eru um viðkomandi hjá Símanum, n.t.t. heimilisfang, farsímanúmer og netfang.
Þá er notandi beðinn um að velja sér fjögurra (4) stafa leyninúmer (pin) til auðkenningar við innskráningu framvegis í smáforritinu.
Óski notandi þess frekar að nota aðra auðkenningarleið í smáforritinu, sem snjalltæki notanda kann að styðja við, n.t.t. með notkun lífkennaupplýsinga (t.d. fingrafara- eða andlitsskanna) er notanda frjálst að velja slíka auðkenningaraðferð í stað leyninúmers. Sé valið að nota slíka auðkenningarleið í gegnum snjalltæki notanda er hún alfarið á ábyrgð notanda. Við notkun á lífkennagreiningu í snjalltæki, svo sem fingrafara- eða andlitsskanna, er sérstök athygli vakin á því að engar upplýsingar um lífkennin berast til Símans.
Aðgangur notanda að smáforritinu skal aðeins vera notaður af honum sjálfum og er notanda óheimilt að deila aðgangsupplýsingum sínum með þriðja aðila eða á annan hátt veita þriðja aðila aðgang að persónulegum aðgangi sínum að smáforritinu.
Notandi ber ábyrgð á að gæta öryggis aðgangsupplýsinga sinna að smáforritinu, svo sem halda leyninúmeri sínu leyndu. Notandi skal eftir fremsta megni reyna að koma í veg fyrir misnotkun á aðgangi notanda að smáforritinu, t.d. með því að veita aldrei þriðja aðila aðgang að snjalltæki sínu þar sem smáforritið Síminn er aðgengilegt eða með því að læsa snjalltæki með kóða eða takkalæsingu. Notandi á ekki að upplýsa aðra um slíka aðgangskóða.
Gruni notanda að aðgangsupplýsingum hans, t.d. leyninúmeri hafi verið stolið eða þær notaðar í leyfisleysi af þriðja aðila ber notanda að breyta leyninúmeri sínu án tafar og hafa samband við Símann.
Notandi ber ávallt fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru í gegnum aðgang notanda í smáforritinu.
Kjósi notandi að skrá sig inn í lausnina með rafrænum skilríkjum getur notandi nálgast í smáforritinu yfirlit yfir allar þær þjónustur sem skráðar eru á kennitölu viðkomandi hjá Símanum.
Ef notandi skráir sig inn í lausnina með lykilorði sem notandi fær sent í gegnum smáskilaboð fær notandi aðgang að upplýsingum um þær þjónustur sem tengjast því símanúmeri sem smáforritið er tengt við.
Auk yfirlits yfir þær þjónustur sem notandi er með hjá Símanum getur notandi nálgast í smáforritinu, sama hvor innskráningarleiðin er notuð, upplýsingar um kostnað fyrir hvern mánuð fyrir sig. Kostnaðurinn birtist í rauntíma þannig að notandi getur fylgst með því í smáforritinu hvernig kostnaðurinn fellur til í tengslum við mismunandi þjónustur.
Rétthafi sér upplýsingar um sundurliðaða notkun á þjónustum í smáforritinu. Greiðandi sér þó aðeins verð á þeim þjónustum sem hann greiðir fyrir.
Sé notandi hvorki rétthafi né greiðandi að þjónustu hjá Símanum munu engar upplýsingar þó birtast honum í smáforritinu um þær mögulegu þjónustur sem hann kann engu að síður að nota hjá Símanum, skrái hann sig inn með rafrænum skilríkjum. Í þeim tilvikum er notandi skráir sig inn í gegnum smáskilaboð getur notandi þó séð notkun og keypt áfyllingu fyrir það símanúmer sem hann skráir sig inn með.
Ef notandi skráir sig inn í lausnina með rafrænum skilríkjum getur notandi gert tilteknar áskriftarbreytingar á þeim þjónustum sem notandi er skráður fyrir og/eða sem hann er greiðandi fyrir hjá Símanum, að því gefnu að notandi sé yfir 18 ára.
Slíkar breytingar eru ekki mögulegar notanda í smáforritinu ef hann skráir sig inn í lausnina með lykilorði í gegnum smáskilaboð.
Í þeim tilvikum sem notandi gerir breytingar í smáforritinu sem leiða til lækkunar á gjaldi vegna þjónustunnar mun breytingin á þjónustunni, og þar með gjaldtaka vegna hennar, taka gildi frá og með næstu mánaðamótum eftir að breytingin er gerð. Sé um að ræða breytingu sem leiðir til hækkunar á gjaldi þjónustunnar verður breytingin strax virk, en viðskiptavinur verður gjaldfærður fyrir þjónustuna frá og með næstu mánaðamótum eftir að breyting var framkvæmd.
Óski notandi þess að segja upp þjónustu hjá Símanum ber honum að koma slíkri uppsögn til Símans með skriflegum hætti, t.d. á www.siminn.is. Að öðru leyti er vísað til umfjöllunar um uppsögn þjónustu í almennum fjarskiptaskilmálum Símans á www.siminn.is.
Notendur með frelsisáskriftir fyrir farsíma geta keypt áfyllingar fyrir slíkar áskriftir í smáforritinu, hvort sem þeir skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða smáskilaboðum.
Vakin er athygli á því að Símanum berast aldrei greiðslukortaupplýsingar vegna þessa en greiðslukortanúmerið breytist strax í sýndarkortanúmer í greiðslugátt hjá færsluhirði og er því aldrei vistað í smáforritinu eða hjá Símanum vegna slíkra viðskipta.
Notendur geta nálgast og greitt útgefna fjarskiptareikninga í smáforritinu. Vakin er athygli á því að Símanum berast aldrei greiðslukortaupplýsingar vegna þessa en greiðslukortanúmerið breytist strax í sýndarkortnanúmer í greiðslugátt hjá færsluhirði og er því aldrei vistað í smáforritinu eða hjá Símanum vegna slíkra viðskipta.
Notendur geta í gegnum smáforritið nálgast yfirlit yfir þau tilboð sem standa þeim til boða í gegnum smáforritið Pay. Um virkjun og notkun slíkra tilboða fer skv. skilmálum Pay.
Hafi notandi sagt upp fjarskiptaþjónustu hjá Símanum er vakin athygli á því að aðgangur viðkomandi að smáforritinu eyðist ekki sjálfkrafa.
Eins er vakin athygli á því að eyðing smáforritsins úr snjalltæki notanda felur hvorki í sér uppsögn á þjónustum notanda hjá Símanum né heldur eyðingu á aðgangi notandans.
Vilji notandi eyða smáforritinu þarf hann að eyða því úr snjalltæki sínu, líkt og gildir um önnur smáforrit. Þá getur notandi eytt aðgangi sínum með því að hafa samband við Símann og óska eftir að aðgangi sé eytt. Um varðveislu á undirliggjandi gögnum um notkun og þjónustur þær sem notandi er með hjá Símanum fer eftir því sem segir í persónuverndarstefnu Símans.
Síminn mun leitast við að tryggja notendum aðgang að smáforritinu án truflana. Síminn getur þó ekki ábyrgst að smáforritið verði ávallt aðgengilegt og að lausnin verði aðgengileg án nokkurra truflana. Þannig kann Síminn að þurfa að takmarka aðgang að lausninni vegna uppfærslna og/eða ef villur koma upp sem gera það að verkum að aðgangur að lausninni, í heild eða hluta, verður takmarkaður.
Verð notandi fyrir tjóni í tengslum við notkun smáforritsins ber Síminn enga ábyrgð á slíku tjóni megi rekja það til gáleysis og/eða vanrækslu notanda eða brota á skilmálum þessum. Þá getur Síminn aðeins borið ábyrgð á beinu tjóni notanda og í öllum tilvikum skal ábyrgð Símans, þ.á m. vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu, truflana, tafa, tjóns eða galla í lausninni takmarkast við 100.000 kr., að því marki sem slík takmörkun er heimil á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til sambandsleysis eða rofa á fjarskiptum.
Við skráningu í lausnina og notkun hennar, verða til upplýsingar sem Síminn safnar og tengjast notanda og varða notkun hans á lausninni. Einnig eru ákveðnar upplýsingar um viðskipti notanda hjá Símanum gerðar aðgengilegar honum í smáforritinu. Þessar upplýsingar teljast til persónugreinanlegra upplýsinga í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Áréttað er að greiðslukortaupplýsingar sem kunna að vera skráðar í gengum lausnina eru aldrei aðgengilegar Símanum.
Í persónuverndarstefnunni fyrir smáforritið „Síminn“, sem aðgengileg er í lausninni og á vefsíðu Símans, er að finna nánari upplýsingar um hvernig unnið er með þær persónuupplýsingar sem safnast við skráningu í lausnina og notkun hennar. Persónuverndarstefnan fyrir smáforritið telst vera hluti af skilmálum þessum og skal notandi kynna sér hana vel áður en hann hefur notkun á forritinu.
Síminn áskilur sér rétt til að gera tæknilegar breytingar og uppfærslur á smáforritinu þegar þörf krefur, þ.á m í þeim tilgangi að bæta lausnina. Mun Síminn tilkynna notendum um slíkar breytingar í þeim tilvikum sem þær gætu haft áhrif á notkun á lausninni eftir því sem unnt er. Þá áskilur Síminn sér rétt til að hætta með lausnina hvenær sem er.
Síminn áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa. Nýjasta útgáfa skilmálanna er ávallt aðgengileg á vefsíðu Símans og í smáforritinu.
Breytingar á skilmálum þessum verða kynntar notendum með skriflegum hætti, svo sem með skilaboðum í gegnum smáforritið eða tölvupósti. Samþykki notandi ekki breytta skilmála fyrir smáforritið getur notandi ekki lengur nýtt sér lausnina eftir að breyttir skilmálar taka gildi þar sem samþykki þeirra er forsenda fyrir áframhaldandi notkun.
Síminn áskilur sér rétt til að senda notanda skilaboð sem tengjast notkun, virkni eða uppfærslum lausnarinnar sem og senda skilaboð er varða breytingar á skilmálum þessum, svo sem með tölvupósti eða skilaboðum í smáforritinu.
Skilmálar þessir eru gefnir út af Símanum og gilda frá 1. júlí 2020 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi eða þar til Síminn ákveður að hætta að bjóða notendum upp á lausnina.
Snjallari Bílar er hugbúnaðarlausn sem Síminn býður upp á í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Modus Solutions, LLC, sem gerir notanda mögulegt að fylgjast rafrænt með staðsetningu og notkun bifreiðar. Hugbúnaðarlausnin er tengd tækjabúnaði (t.d. ökurita) sem komið er fyrir í bifreið notanda. Í tækjabúnaðinn er sett SIM kort frá Símanum og í gegnum hugbúnaðarlausnina er veittur aðgangur að upplýsingum um bifreiðina og aksturslag hennar. Notandi getur bæði notast við vefviðmót lausnarinnar sem og smáforrit (App). Frekari leiðbeiningar um notkun og virkni Snjallari Bíla eru aðgengilegar hér á vefnum. Skilmálar þessir gilda um Snjallari Bíla hugbúnaðarlausnina og eftir því sem við á þann tækjabúnað sem notandi hefur keypt af Símanum.
1.1. Skráningarskilyrði
Snjallari Bílar hugbúnaðarlausnin er einungis ætluð einstaklingum eldri en 18 ára.
Til þess að notandi geti notað lausnina Snjallari Bílar þarf hann að hafa:
tækjabúnað sem komið er fyrir í bifreið, sbr. gr. 2.4,
SIM kort frá Símanum,
aðgang að tölvu og/eða snjalltæki þar sem notandi getur nálgast lausnina,
netfang, og
skráð farsímanúmer
Til þess að stofna aðgang þarf að hafa samband við Símann og gefa upp nafn sitt, kennitölu og netfang, svo Síminn geti útbúið aðgang fyrir réttan aðila og reikningsfært réttan aðila. Síminn sendir næst skilaboð til viðkomandi með leiðbeiningunum hvernig hægt er að virkja aðganginn að lausninni.
Um meðferð Símans á persónuupplýsingum gildir Persónuverndarstefna Snjallari Bíla sem aðgengileg er á vefsíðu Símans, www.siminn.is, sbr. gr. 6.
Notandi ábyrgist að upplýsingar sem skráðar eru séu alltaf réttar og varði hann sjálfan, eða hann hafi heimild til að skrá upplýsingar varði þær þriðja aðila. Það er alfarið á ábyrgð notanda að uppfæra umræddar upplýsingar þegar og ef þörf krefur.
Síminn áskilur sér rétt til að meina notanda skráningu í Snjallari Bílar ef Síminn hefur áður sagt upp eða rift samningi við notanda um Snjallari Bílar eða aðrar þjónustur Símans.
1.2. Aðgangur notanda
Aðgangur notanda að viðmóti lausnarinnar skal aðeins vera notaður af honum sjálfum og skal notandi varðveita vel notandanafn sitt og lykilorð, sbr. þó gr. 1.3.
Ákveði notandi að deila aðgangsupplýsingum með þriðja aðila, eða á annan hátt veita þriðja aðila aðgang að aðgangi sínum að Snjallari Bílum, skal það alfarið vera á ábyrgð notanda.
Telji notandi að óviðkomandi þriðji aðili hafi komist yfir aðgang hans skal hann tilkynna það tafarlaust til Símans, sbr. gr. 7.3.
1.3. Aukanotendur
Með lausninni geta notendur heimilað öðrum aðila aðgang að lausninni, s.k. aukanotanda. Notandi sem hefur aðgang að fleiri aðgöngum en sínum persónulega aðgangi telst hafa svokallaðan „aukinn aðgang“ eða „admin aðgang“.
Síminn gengur út frá því að notanda sé heimilt að bæta við viðkomandi sem aukanotanda lausnarinnar og að aukanotanda sé kunnugt um að allar upplýsingar sem safnast um notkun hans á lausninni séu aðgengilegar á reikningi notanda.
Notandinn getur sjálfur breytt aðgangi aukanotanda í vefviðmótinu og eytt út gögnum þeirra í þeim tilvikum sem hann óskar þess.
Berist Símanum fyrirspurnir frá aukanotanda sem varða aðgang hans að lausninni, eyðingu upplýsinga um hann eða annað sem tengist vinnslu upplýsinga um hann við notkun lausnarinnar mun Síminn eftir fremsta megni beina slíkum beiðnum áfram til notanda, nema í þeim tilvikum sem Símanum telur að félaginu sé heimilt eða skylt að bregðast við fyrirspurninni án frekari aðkomu notanda.
Skilmálar þessir gilda, eftir því sem við á, um notkun aukanotanda á lausninni þ.m.t., en þó ekki takmarkað við, gr. 2.5. og 5. Að öðru leyti fer um notkun aukanotanda á lausninni, þar á meðal hvað varðar aðgang notanda að lausninni, eftir samkomulagi þeirra sín á milli og eru slíkir samningar Símanum óviðkomandi.
1.4 Réttur notanda til að falla frá samningi
Notandi, sem neytandi í skilningi neytendalaga, hefur rétt til að falla frá samningi þessum innan 14 daga frá því að hann var staðfestur af hálfu notanda, sbr. gr. 1. Skal slík tilkynning berast Símanum, sbr. gr. 7.3. Notandi þarf ekki að tilgreina ástæðu fyrir þeirri ákvörðun sinni að falla frá samningnum.
Um leið og notandi byrjar að nota lausnina fyrirgerir notandi hins vegar rétti sínum til þess að falla frá samningnum.
2. Eiginleikar og notkun Snjallari Bíla
2.1. Lausnin
Gegn greiðslu þóknunar, sbr. gr. 3, fær notandi leyfi til að nota hugbúnað (vefviðmót og smáforrit, einnig vísað til sem „kerfis“) sem gerir notanda kleift að fylgjast með notkun og staðsetningu bifreiða. Í lausninni felst jafnframt hýsing á þeim upplýsingum sem safnast við notkun á kerfinu sem gerir notanda kleift að skoða upplýsingar þær sem safnast aftur í tímann á aðgangi sínum. Nánari upplýsingar um hýsingu þessa er að finna í Persónuverndarstefnu Snjallari Bíla.
2.2. Lausn virkjuð
Til þess að virkja lausnina þarf notandi að tengja kerfið við tækjabúnað (t.d. ökurita). Frekari leiðbeiningar um tengingu búnaðar við lausnina má finna á www.siminn.is. Notandi getur tengt fleiri en eitt ökutæki við aðgang sinn í lausninni, að því gefnu að búnaður hafi verið virkjaður í hverju ökutæki.
Að öðru leyti fer um uppsetningu aðgangs skv. gr. 1.1. í skilmálum þessum.
2.3. Notkunarmöguleikar
Unnt er að nálgast lausnina í gegnum vefviðmót á https://bilar.siminn.is en notandi hefur einnig val um að hlaða niður smáforriti Símans (App), Síminn Snjallari Bílar, til að nálgast lausnina. Einungis er unnt að veita aukanotanda aðgang í gegnum vefviðmót lausnarinnar. Upplýsingar um aukanotendur eru aðgengilegar notanda með aukinn aðgang í gegnum vefviðmót og smáforrit (Appi) lausnarinnar. Nánari upplýsingar um upplýsingasöfnun vefviðmótsins annars vegar og smáforritsins (Appsins) hins vegar eru aðgengilegar á www.siminn.is.
2.4. Tækjabúnaður
Notanda er óheimilt að nota lausnina og tengja hana við annan tækjabúnað en þann sem Síminn hefur samþykkt, sem notandi hefur keypt af Símanum eða keypt af þriðja aðila í gegnum Símann. Kaupi notandi tækjabúnað frá Símanum skal notandi greiða Símanum endurgjald fyrir slíkan búnað eftir því sem mælt er fyrir um í verðskrá Símans á vefsíðu þess www.siminn.is. Notandi ber ábyrgð á uppsetningu á tækjabúnaði nema um annað sé samið og greitt fyrir á grundvelli gjaldskrár Símans. Í þeim tilvikum sem Síminn hefur útvegað leiðbeiningar og fyrirmæli um tengingu búnaðar við ökutæki skal notandi fylgja þeim í hvívetna.
Um ábyrgð á tækjabúnaði sem notandi hefur keypt af Símanum skal fara eftir því sem segir í gr. 4.2.
Sé tækjabúnaður tengdur bifreiðum í gegnum OBD-II tækni ber notanda að gæta þess að sú gerð bifreiðar sem búnaðurinn er tengdur við styðji við stöðluð OBD-II samskipti. Í þeim tilvikum er óheimilt er að nota búnaðinn í bifreiðar sem eru framleiddar fyrir 1996 þar sem slíkar bifreiðar styðja almennt ekki við stöðluð OBD-II samskipti.
2.5. Óheimil notkun
Notanda er með öllu óheimilt að:
afrita kerfið í heild eða hluta, eða breyta, endurþýða eða endurhanna, án þess að hafa aflað sér fyrirfram skriflegrar heimildar Símans, að því marki sem heimilt er að takmarka slíkt með samningi skv. lögum,
tengja annan búnað við lausnina en þann sem Síminn hefur samþykkt eða selt notanda, sbr. gr. 2.4.
setja búnað í ökutæki þriðja aðila án vitneskju eiganda eða ökumanns bifreiðar eða vakta aðra einstaklinga með rafrænum hætti með leynd eða öðrum óheimilum hætti, sbr. gr. 4.1.
Verði Síminn var við ofangreinda notkun á lausninni, eða ef notandi brýtur að öðru leyti gegn skilmálum þessum, áskilur Síminn sér rétt til að loka fyrirvaralaust aðgangi viðkomandi notanda að Snjallari Bílum og rifta um leið samningi þessum, sbr. gr. 4. og 8.
3. Þóknun
3.1. Verðskrá
Fyrir notkun á lausninni ber notanda að greiða Símanum þóknun í samræmi við verðskrá Símans sem aðgengileg er á www.siminn.is.
Verð er tilgreint í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti, nema annað sé tekið fram. Komi til breytinga á verðskrá skulu þær tilkynntar notanda með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
3.2. Reikningar
Notandi er gjaldfærður mánaðarlega fyrirfram fyrir notkun lausnarinnar.
Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok þess mánaðar. Gjalddagi reikninga er 20 dögum eftir lok reikningstímabils og eindagi að jafnaði 15 dögum eftir gjalddaga. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal notandi greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með gjalddaga til greiðsludags. Hafi notandi ekki greitt reikninga tvo gjalddaga í röð áskilur Síminn sér rétt til að loka fyrir aðgang viðkomandi og eftir atvikum aukanotanda á hans vegum að lausninni og eftir atvikum rift samningi þessum við notanda og eyða aðgangi notanda og eftir atvikum aukanotanda að lausninni, sbr. gr. 8.4.
3.3. Annað
Notandi ber eftir sem áður ábyrgð á greiðslu gjalda vegna fjarskiptaþjónustu sem hann kaupir frá sínu fjarskiptafélagi vegna notkunar á snjalltæki sínu, t.d. notkun á gagnamagni.
Framangreint tekur ekki til greiðslu vegna þess búnaðar sem notandi kýs að tengja við lausnina, sbr. gr. 2.4.
4.1 Ábyrgð notanda
Hafi fleiri aðilar en notandi aðgang að bifreið sem tækjabúnaði hefur verið komið fyrir í, og hann tengdur kerfinu, ber notandi alfarið ábyrgð á því að upplýsa þá aðila um tilvist búnaðarins og söfnun þeirra upplýsinga sem fer fram með lausninni og tilganginn með söfnuninni/vöktuninni. Á þetta t.a.m. við í vinnusambandi og undir öllum öðrum kringumstæðum þar sem fleiri aðilar en notandi hafa aðgang að bifreið, þ.á m. maki eða aðrir fjölskyldumeðlimir.
Þá ábyrgist notandi í hverju tilviki fyrir sig að hann hafi rétt til þess að koma tækjabúnaði fyrir í þeirri bifreið sem hann gerir og að hann hafi rétt til að fylgjast með notkun þeirrar bifreiðar með tenginu við lausnina.
Skal notandi halda Símanum skaðlausu í tengslum við hvers konar kröfur þriðja aðila sem kunna að vera gerðar á hendur Símanum brjóti notandi gegn framangreindu.
4.2 Ábyrgð Símans
Komi í ljós innan árs frá afhendingu búnaðar (eða innan tveggja ára sé notandi neytandi í skilningi neytendalaga) að tækjabúnaðurinn er gallaður ber Símanum að gera við eða útvega notanda nýjan búnað í samræmi við meginreglur laga um lausafjárkaup. Það sama gildir um galla í kerfinu, komi í ljós galli í því ber Símanum að gera við það í samstarfi við Modus. Sé ekki fýsilegt að gera við galla skal Símanum jafnframt heimilt að endurgreiða notanda greidda þóknun fyrir viðkomandi tækjabúnað eða kerfið, eftir því sem við á.
Noti notandi tækjabúnaðinn eða kerfið með óeðlilegum hætti ber Síminn enga ábyrgð á búnaðnum og/eða kerfinu eða því tjóni sem notandi kann að verða fyrir. Með óeðlilegri notkun er t.a.m. átt við það ef notandi brýtur gegn gr. 2.4 eða 2.5, ef notandi breytir með einhverjum hætti búnaðnum eða kerfinu, ef notandi opnar búnaðinn eða fiktar í honum með öðrum hætti, eða ef gert er við búnaðinn með ófullnægjandi hætti. Þá ber Síminn ekki ábyrgð á mögulegu tjóni eða skemmdum sem kunna að verða á bifreið notanda við uppsetningu eða tengingu búnaðarins, nema um annað hafi verið samið sbr. gr. 2.4. Síminn ber ekki ábyrgð á að vinnsla í kerfinu stöðvist tímabundið, að aðgangur að gögnum notanda í kerfinu verði ekki mögulegur eða á tapi notanda á gögnum sem safnast hafa í kerfinu. Þá ber Síminn ekki ábyrgð á áreiðanleika þeirra gagna sem safnast í kerfinu.
Síminn ber í engu tilviki ábyrgð á rekstrartapi notanda og/eða þriðja aðila, né heldur afleiddu tjóni slíkra aðila, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á tækjabúnaði eða kerfinu eða til annarra ástæðna, jafnvel þó að Símanum hafi verið tilkynnt um möguleikann á slíku tjóni.
Í öllum tilvikum skal ábyrgð Símans, vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu, truflana, tafa, tjóns eða galla á lausninni takmarkast við jafnvirði þeirrar þóknunar sem notandi hefur sannanlega greitt Símanum fyrir lausnina á síðustu 3 mánuðum fyrir það atvik sem orsakaði umrætt tjón, að því marki sem heimilt er á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
Ef aðili getur ekki uppfyllt skyldur sínar vegna neyðarréttarlegra, óviðráðanlegra atvika (force majeure) falla skuldbindingar hans, þ.m.t. möguleg bótaábyrgð, niður á meðan slíkt ástand varir.
5.1
Allur hugverkaréttur að kerfinu er annað hvort eign Símans eða þriðja aðila, þ.á m. Modus. Samningur þessi hefur ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfunda- eða hugverkarétti frá Símanum eða Modus til notanda eða aukanotanda. Gegn greiðslu þóknunar fær notandi, og eftir atvikum aukanotandi á hans vegum, með samningi þessum hins vegar leyfi til notkunar á kerfinu á samningstíma, þ.á m. hugbúnaði Modus sem lausnin byggir á.
Allt innihald smáforritsins og vefsvæðis er í eigu Símans hf. eða Modus, þ.m.t. vörumerkið Snjallir Bílar, texti, hönnun, grafík, ljósmyndir, myndir og ritstýrt efni er varið höfundarétti. Dreifing, fjölföldun, endurútgáfa eða annars konar sambærileg notkun af höfundavörðu efni Símans eða Modus er með öllu óheimil.
6.1
Við notkun þjónustunnar verða til upplýsingar um notkun þeirra bifreiða sem tengdar hafa verið kerfinu, þ.á m. um staðsetningu, aksturslag, bilanir og/eða viðhaldsþörf bifreiðanna. Þessar upplýsingar kunna eftir atvikum að teljast til persónuupplýsinga í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Í Persónuverndarstefnu Snjallari Bíla, sem aðgengileg er á vefsíðu www.siminn.is, er að finna nánari upplýsingar um hvernig unnið er með þær upplýsingar sem safnast við notkun á lausninni. Persónuverndarstefna þessi skal teljast hluti af samningi þessum og skal notandi því kynna sér hana vel.
7.1 Tæknilegar breytingar eða uppfærslur
Síminn áskilur sér rétt til að gera tæknilegar breytingar eða uppfærslur á Snjallari Bílum þegar þörf krefur, þ.á m. til að bæta lausnina. Mun Síminn tilkynna notanda um slíkar breytingar í þeim tilvikum sem slíkar breytingar geta haft áhrif á notkun á Snjallari Bíla eftir því sem unnt er.
7.2 Breytingar á skilmálum Snjallari Bíla
Síminn áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa. Nýjasta útgáfa skilmála þessa er aðgengileg á vefsíðu Símans og í gegnum smáforritið Snjallari Bílar. Samþykki notandi ekki breytta skilmála Snjallari Bíla getur notandi ekki lengur nýtt sér lausnina eftir að breyttir skilmálar taka gildi og verður aðgangi hans, og eftir atvikum aukanotanda á hans vegum, þá sjálfkrafa lokað.
7.3 Samskipti milli Símans og notanda
Síminn áskilur sér rétt til að senda notanda og eftir atvikum aukanotanda skilaboð sem tengjast lausninni, þ.á m. tilkynningar um tæknilegar breytingar eða uppfærslur á lausninni eða breytingar á skilmálum, með því að senda SMS skilaboð, tölvupóst eða skilaboð í gegnum smáforritið. Síminn mun ávallt óska eftir samþykki fyrir að mega hafa samband við notanda og/eða aukanotanda í markaðslegum tilgangi, svo sem til að senda skilaboð um aðrar þjónustur og/eða vörur Símans. Unnt er að afturkalla slíkt samþykki hvenær sem er með því að senda tilkynningu þess efnis til Símans eða með því að hafa samband símleiðis við þjónustuver.
Hvers konar samskiptum til Símans, þ. á m. ábendingar og kvartanir, skulu fara fram með eftirfarandi hætti:
Frekari upplýsingar um tilkynningaraðferð og/eða -form gætu verið birtar á vefsvæðinu www.siminn.is eða í skilaboðum frá Símanum til notanda og eftir atvikum aukanotanda.
8.1 Lokun aðgangs
Síminn áskilur sér rétt til að loka tímabundið fyrir aðgang notanda og/eða aukanotanda ef eitthvert af skilyrðum í gr. 8.4. eru uppfyllt. Upplýsingum um notanda, og eftir atvikum aukanotanda, eða notkun hans á lausninni er ekki eytt þegar aðgangi er lokað tímabundið, heldur eru þær varðveittar þar til samningi þessum er sagt upp eða rift, sbr. gr. 8.-2.-8.4. og Persónuverndarstefnu Símans. Auk þess að loka tímabundið fyrir aðgang áskilur Síminn sér rétt til að loka tímabundið á fjarskiptaþjónustu og þar með söfnun upplýsinga með lausninni í tilviki vanskila notanda, eins og nánar er kveðið á um í almennum fjarskiptaskilmálum Símans á www.siminn.is.
8.2 Uppsögn af hálfu notanda
Notandi getur sagt upp samningi þessum með tilkynningu til Símans hvenær sem er, sbr. gr. 7.3. Við tilkynningu um uppsögn samnings þarf notandi að tilgreina kennitölu sína og nafn. Uppsögn notanda tekur gildi strax og lokast aðgangur notanda, og eftir atvikum aukanotanda, samtímis. Vakin er athygli á að eyðing smáforritsins Snjallari Bílar úr snjalltæki notanda felur ekki í sér uppsögn á samningi þessum eða á notkun Snjallari Bíla. Með sama hætti felur það ekki í sér uppsögn á samningi fjarlægi notandi tækjabúnað úr bifreið sinni eða aftengi hann kerfið með öðrum hætti.
8.3 Uppsögn af hálfu Símans
Síminn getur sagt upp samningi þessum við notanda hvenær sem er með tveggja mánaða fyrirvara. Skal slík uppsögn berast notanda skriflega, svo sem með tölvupósti. Síminn þarf ekki að tilgreina ástæðu uppsagnar. Að uppsagnarfresti liðnum lokast sjálfkrafa aðgangur notanda, og eftir atvikum aukanotanda, að Snjallari Bílum.
8.4 Riftun samnings
Síminn áskilur sér rétt til að rifta samningnum án fyrirvara og þar með eyða aðgangi notanda, og eftir atvikum aukanotanda, fyrirvaralaust ef eitthvert neðangreindra skilyrða á við:
notandi eða aukanotandi fer ekki eftir skilmálum þessum, lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum við notkun á Snjallari Bílum, sbr. einkum gr. 2.5.,
notandi eða aukanotandi hefur í frammi ógnandi hegðun gagnvart starfsfólki Símans,
ef notandi stendur ekki skil á þóknun vegna notkun lausnarinnar tvo gjalddaga í röð, sbr. gr. 3.2, eða
ef Símanum er það skylt skv. fyrirmælum frá stjórnvöldum eða dómstólum.
8.5 Áhrif uppsagnar/riftunar
Við uppsögn samnings þessa, hvort sem er af hálfu notanda eða Símans, eyðast öll gögn um notkun notanda og eftir atvikum aukanotanda á lausninni við lok uppsagnarfrests.
Skyldi Síminn rifta samningi við notanda áskilur Síminn sér rétt til að eyða aðgangi notanda, þ.m.t. öllum upplýsingum um notanda og notkun hans (og eftir atvikum aukanotanda). Hafi Síminn rift samningi við notanda vegna athæfis sem varðar við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli áskilur Síminn sér rétt til að leita réttar síns eða kæra viðkomandi til lögreglu. Slíkur réttur skal einnig vera til staðar vakni grunur um saknæma háttsemi jafnvel þó svo að Síminn ákveði að rifta ekki samningi við notanda. Framangreint á einnig við um athæfi eða háttsemi aukanotanda.
9.1
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli notanda og Símans vegna lausnarinnar Snjallari Bílar, sem ekki reynist unnt að leysa með farsælum hætti milli aðila, skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
10.1
Skilmálar þessir eru gefnir út af Símanum og gilda frá 1. september 2018 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.
Pay er greiðslulausn sem dótturfélag Símans hf., Farsímagreiðslur ehf., bjóða í formi Apps (snjallforrits) á Google Play og í Apple App Store.
Með því að skrá þig sem notanda í Pay og staðfesta að þú hafir kynnt þér, skilið og samþykkt neðangreinda skilmála hefur þú undirgengist skilmála Farsímagreiðslna ehf., kt. 471103-2250, Ármúla 25, 108 Reykjavík, (hér eftir „Farsímagreiðslur“ eða „við“), eins og þeir eru á hverjum tíma, og fela þeir í sér heildarsamning milli okkar og þín sem notanda, um notkun Pay (einnig vísað til sem „samningsins“).
Í skilmálum þessum er einnig vísað til lausnarinnar Pay sem „lausnarinnar“, „Pay“ og/eða „Appsins“.
Notandi skal kynna sér vandlega skilmála þessa áður en stofnaður er aðgangur í Pay og er samþykki skilmálanna forsenda þess að notandi megi og geti notað lausnina. Óski notandi eftir hliðræðu afriti af skilmálum þessum skal notandi koma slíkri beiðni á framfæri við Farsímagreiðslur. Notandi er jafnframt hvattur til að vista afrit af þeim skilmálum sem hann samþykkir áður en hann byrjar að nota Pay.
Skilmálar Pay, eins og þeir eru hverju sinni, eru birtir á www.siminn.is og einnig aðgengilegir í gegnum Appið Pay. Leiðbeiningar um notkunarmöguleika lausnarinnar eru að finna á www.siminn.is/pay, m.a. um hvernig notandi getur nálgast greiðslukvittun eða greiðslusögu sína.
Skilmálar þessir hafa ekki áhrif á þau gjöld og/eða kostnað sem notandi kann að þurfa greiða fjarskiptafélagi sínu, viðskiptabanka, kortaútgefanda sínum eða öðrum þriðju aðilum í tengslum við þjónustu umræddra aðila sem byggja á lausninni.
Til þess að notandi geti notað lausnina Pay þarf hann að hafa:
Við stofnun aðgangs í Appinu þarf notandi að skrá framangreindar upplýsingar í nýskráningarferli Pay, ásamt nafni sínu og kennitölu.
Notandi ábyrgist að upplýsingar sem skráðar eru í Appið séu alltaf réttar og varði hann sjálfan.
Það er því alfarið á ábyrgð notanda að uppfæra upplýsingar um sig í Appinu þegar og ef þörf krefur.
Sérstök athygli er vakin á því að notanda er einungis heimilt að tengja eigin greiðslukort við lausnina. Notandi lausnarinnar og korthafi viðkomandi greiðslukorts/a skal því ávallt vera sami aðili.
Þrátt fyrir ofangreint getur annað átt við þegar um fyrirtækjakort er að ræða. Í þeim tilvikum getur notandi tengt greiðslukort lögaðila við lausnina. Það er hins vegar forsenda fyrir notkun á fyrirtækjakorti að forsvarsmaður lögaðila hafi sérstaklega samþykkt notkun á kortinu með virkjunarkóða. Hugtakið „notandi“ í skilmálum þessum skjal jafnframt eiga við um lögaðila þann sem er rétthafi fyrirtækjakortsins auk hins eiginlega notanda, eftir því sem við á.
Við áskiljum okkur rétt til að meina aðilum skráningu sem notanda í Pay ef við teljum slíka skráningu ekki þjóna viðskiptalegum hagsmunum okkar.
Aðgangur notanda að Pay skal aðeins vera notaður af honum sjálfum og er notanda óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með þriðja aðila eða á annan hátt veita þriðja aðila aðgang að persónulegum aðgangi sínum að Pay. Notandi skal tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna og ber ábyrgð á hvers kyns tjóni sem kann að hljótast af því að aðgangsupplýsingar rati til þriðja aðila, hvort sem það er með vitneskju notanda eður ei.
Notandi sem auðkennir sig með réttu lykilorði, sbr. gr. 1.3., er álitinn réttur eigandi viðkomandi notendaaðgangs að Pay og hefur einungis sá aðili heimild til að framkvæma aðgerðir á þeim notendaaðgangi í Pay. Notandi ber ávallt fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem staðfestar hafa verið með framangreindum hætti í Pay.
Við nýskráningu ber notanda að auðkenna sig, annað hvort með rafrænum skilríkjum í lausninni eða með notkun kóða sem notandi fær sendan í netbanka sinn.
Að innskráningu lokinni skal notandi velja staðfestingarkóða (hér eftir „PIN-númer“) sem notandi skal nota til auðkenningar í hvert sinn sem hann greiðir með Pay.
Vegna öryggisástæðna skal notandi ekki hafa sama PIN-númer fyrir Pay og hann notar sem aðgangskóða til þess að aflæsa snjallsíma sinn. PIN-númerið skal heldur ekki vera það sama og fyrir skráð greiðslukort notanda í Pay. Notandi getur jafnframt valið á eigin ábyrgð að auðkenna greiðslur í Pay með fingrafari, styðji snjalltæki notanda slíka auðkenningarleið. Notandi skal tryggja að aðeins hans fingrafar sé skráð í símtækinu vegna öryggisástæðna. Sé slík auðkenningarleið notuð er hún á ábyrgð notanda. Við notkun á fingrafari sem auðkenningarleið berast engar upplýsingar um fingrafarið til okkar.
Í þeim tilvikum sem við teljum þörf á, til eflingar öryggis lausnarinnar, kann notanda að vera skylt að auðkenna sig í fleiri tilvikum við notkun lausnarinnar
Við skráningu í lausnina og notkun hennar verða til upplýsingar sem Farsímagreiðslur safna og tengjast notanda, þ. á m. greiðslusaga notanda og greiðslukvittanir, sem og upplýsingar sem notandi skráir í lausnina, sbr. gr. 1.1. og 1.3. Þessar upplýsingar teljast til persónugreinanlegra upplýsinga í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Áréttað er að greiðslukortaupplýsingar eru aldrei aðgengilegar okkur.
Í Persónuverndarstefnu Pay, sem aðgengileg er á vefsíðu og í Appinu, er að finna nánari upplýsingar um hvernig unnið er með þær upplýsingar sem safnast við skráningu í lausnina og notkun hennar. Persónuverndarstefna þessi skal teljast hluti af samningi þessum og skal notandi því kynna sér hana vel áður en hann hefur notkun á lausninni.
Nánari upplýsingar um þær öryggisráðstafanir sem Farsímagreiðslur nota til að vernda persónuupplýsingar notenda Pay eru að finna í gr. 6.
Í hvert sinn sem notandi greiðir fyrir vörur eða þjónustu með lausninni munu Farsímagreiðslur óska eftir afriti af greiðslukvittun frá viðkomandi söluaðila í þeim tilgangi að geta birt notanda kvittunina í Pay.
Hafi notandi samþykkt það sérstaklega í Appinu getur hann einnig fengið greiðslukvittanir sínar birtar í Pay þótt hann hafi ekki notað Pay við framkvæmd greiðslu, svo lengi sem hann greiddi með greiðslukorti sem skráð er í Pay. Slíkt er einungis mögulegt þegar um greiðslu hjá söluaðila er að ræða sem býður upp á greiðsluúrræði Pay.
Með Pay getur notandi greitt fyrir vöru og/eða þjónustu á sölustað sem býður upp á greiðslur með Pay.
Hafi notandi skráð fleiri greiðslukort í Pay er það alfarið á ábyrgð notanda að gæta þess að velja rétt greiðslukort við hverja notkun á Pay.
Þegar notandi velur að greiða með Pay (t.d. til að greiða fyrir vöru eða þjónustu) er leitað eftir úttektarheimild fyrir upphæðinni hjá kortaútgefanda viðkomandi korts sem notandi hefur valið. Á framangreint bæði við um debet- og kreditkort. Kortaútgefandi metur hvort umbeðin úttekt sé heimiluð af greiðslukortinu. Hafni kortaútgefandi umbeðinni úttekt af greiðslukortinu er færslunni hafnað í Pay.
Þegar notandi hefur auðkennt og samþykkt greiðslu með Pay getur hann ekki afturkallað greiðsluna.
Upplýsingar um greiðslusögu í Pay eru aðgengilegar notanda í Appinu meðan hann hefur virkan notendaaðgang.
Notanda er með öllu óheimilt að nota Pay:
Verðum við vör við ofangreinda notkun á lausninni áskiljum við okkur rétt til að læsa fyrirvaralaust aðgangi viðkomandi notanda að Pay og rifta um leið samningi þessum, sbr. gr. 3. og 4.2. í skilmálum þessum..
Í gegnum Pay getur notandi sótt um og/eða virkjað vildar- og meðlimakort frá samstarfsaðilum okkar, og notið afsláttarkjara með notkun á lausninni.
Notkun á vildar- og meðlimakortunum er háð samþykki á skilmálum samstarfsaðila okkar sem eftir atvikum eru birtir, fyrir hönd samstarfsaðila, í lausninni.
Þegar notandi hefur skráð vildar- og/eða meðlimakort í lausnina getur hann notið þeirra afsláttarkjara sem viðkomandi söluaðilar veita með notkun á greiðslukortum þeim sem notandi hefur jafnframt skráð í lausnina.
Farsímagreiðslur hafa enga aðkomu að því sambandi sem stofnast milli notanda og viðkomandi söluaðila hvað varðar notkun á vildar- eða meðlimakorti þess síðarnefnda, að öðru leyti en að hafa milligöngu hvað varðar umsókn um skráningu og/eða virkjun á kortinu.
Söluaðili hefur þannig t.a.m. ákvörðunarvald yfir því hvort/hvaða afsláttarkjör skuli veita notanda á grundvelli kortsins, hvernig nota má kortið o.s.frv. Þá ber söluaðili alfarið ábyrgð gagnvart notanda komi upp ágreiningur um afsláttarkjör og virkjun á slíkum kjörum, þ.á m. hjá söluaðila og eftir atvikum þriðju aðilum.
Um vinnslu Farsímagreiðslna á persónuupplýsingum notanda fyrir hönd söluaðila vísast í Persónuverndarstefnu Pay auk þess sem vísað er í persónuverndarstefnu söluaðila.
Farsímagreiðslur áskilja sér rétt til að læsa aðgangi notanda að Pay án fyrirvara í eftirfarandi tilvikum, ef:
Við læsingu á aðgangi reynum viðað tilkynna notanda um læsinguna við fyrsta tækifæri, annað hvort áður eða strax eftir að aðgangur hefur verið læstur. Í tilkynningu frá okkur er upplýst um ástæðu og tímasetningu læsingar, nema óheimilt sé skv. lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum að veita slíkar upplýsingar. Við áskiljum okkur þó rétt til að tilkynna ekki um ástæður læsingar ef við teljum slíkar upplýsingar geta stefnt öryggi Pay eða aðgangi notandans eða annarra notenda í hættu.
Læsing aðgangs felur ekki í sér uppsögn/riftun samnings af hálfu okkar, sbr. gr. 4, nema slíkt sé sérstaklega tekið fram.
Upplýsingar um notanda, þ. á m. greiðslusaga hans og greiðslukvittanir, varðveitast áfram í Appinu þrátt fyrir að aðgangi hans hafi verið læst, þar til samningi er sagt upp eða rift, sbr. gr. 4 og Persónuverndarstefnu Pay
Aðgangi notanda að Pay verður ekki lokað nema með uppsögn eða riftun þessa samnings. Vakin er athygli á því að læsing aðgangs, sbr. gr. 3, hefur ekki í för með sér uppsögn samnings og lokun aðgangs.
Notandi getur lokað aðgangi sínum að Pay hvenær sem er, með því að eyða aðgangi sínum í Appinu (undir flipanum „Eyða aðgangi“). Með því að eyða aðgangi í Appinu er notandi um leið að segja upp samningi þessum. Uppsögn notanda tekur gildi strax.
Hafi snjalltæki notanda týnst eða verið stolið getur notandi tilkynnt okkur um uppsögn í Netspjalli Símans á siminn.is eða haft samband í síma 800-7000.
Hafi notandi sagt upp fjarskiptaþjónustu hjá sínu fjarskiptafyrirtæki hefur það ekki í för með sér uppsögn á Pay.
Vakin er athygli á að eyðing Appsins Pay úr snjalltæki notanda felur ekki í sér uppsögn á samningi þessum eða eyðingu á aðgangi notandans. Ef notandi eyðir aðgangi sínum í Appinu og segir þar með upp samningi þessum mun hann ekki lengur geta nýtt sér lausnina Pay.
Við getum sagt upp samningi þessum við notanda hvenær sem er með eins mánaðar fyrirvara. Skal slík uppsögn berast notanda skriflega, svo sem með tölvupósti. Við þurfum ekki að tilgreina ástæðu uppsagnar, en einkum gæti uppsögn átt sér stað ef notandi brýtur gegn skilmálum Pay eða öðrum viðeigandi skilmálum okkar, stofnar öryggi Pay í hættu eða fylgir ekki fyrirmælum okkar. Að uppsagnarfresti liðnum lokast sjálfkrafa aðgangur notanda að Pay
Við áskiljum okkur rétt til að rifta samningnum án fyrirvara og þar með eyða aðgangi notanda fyrirvaralaust, ef eitthvert neðangreindra skilyrða á við:
Um varðveislu upplýsinga um notanda og greiðslusögu hans fer skv. gr. 5 í Persónuverndarstefnu Pay. Ópersónugreinanleg gögn um notkun notanda á lausninni varðveitast áfram ótímabundið.
Hafi Farsímagreiðslur rift samningi við notanda vegna athæfis sem varðar við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli áskilja Farsímagreiðslur sér rétt til að leita réttar síns eða kæra viðkomandi til lögreglu. Slíkur réttur skal einnig vera til staðar vakni grunur um saknæma háttsemi jafnvel þó svo að Farsímagreiðslur ákveði að rifta ekki samningi við notanda.
Öll notkun Pay er á ábyrgð notanda. Notandi ber ábyrgð á aðgangsupplýsingum sínum að Pay og öryggi þeirra, sbr. gr. 6. Hið sama á við um greiðslukortaupplýsingar sem hann skráir í Pay. Ber honum að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðili komist yfir snjalltæki hans (sem tengt er Pay) og aðgangsupplýsingar hans. Hafi snjalltæki notanda týnst eða verið stolið ber notandi ábyrgð á því að biðja okkur um að læsa aðgangi sínum, sbr. gr. 3.
Notandi ber ábyrgð á því að næg heimild/innistæða sé á greiðslukorti þegar hann framkvæmir greiðslu með Pay.
Notandi viðurkennir og samþykkir með skilmálum þessum að allar greiðslur eru óafturkræfar ef auðkenni notanda hefur verið notað til staðfestingar í Pay.
Notandi ber ábyrgð á að fylgjast með greiðslusögu sinni á Pay í Appinu. Telji notandi að greiðsla hafi átt sér stað án hans heimildar og/eða án auðkenningar í Pay ber honum að tilkynna okkur slíkt án tafar. Það sama á við verði notandi var við aðrar óeðlilegar hreyfingar á aðgangi sínum. Tilkynning skal senda Símanum í Netspjalli Símans á siminn.is.
Komi í ljós galli í lausninni, sem veruleg áhrif hefur á virkni lausnarinnar, ber Farsímagreiðslum að lagfæra hann sé slíkt mögulegt.
Verði notandi fyrir tjóni í tengslum við notkun lausnarinnar bera Farsímagreiðslur enga ábyrgð á slíku tjóni megi rekja það til vanrækslu notanda eða brota hans á skilmálum þessum. Það sama á við hafi notandi notað lausnina með saknæmum eða ólögmætum hætti eða hafi notandi veitt þriðja aðila aðgang að Pay.
Farsímagreiðslur bera ekki ábyrgð á að vinnsla í lausninni stöðvist tímabundið. Þá bera Farsímagreiðslur enga ábyrgð á þeim vörum/þjónustu sem notandi greiðir fyrir með Pay, þeirri færsluhirðingu sem á sér stað í tengslum við notkun Pay, réttleika þeirra gagna sem berast frá söluaðila, eða annarra atvika sem tengjast þjónustu þriðju aðila eða atriðum sem notandi lausnarinnar ber sjálfur ábyrgð á samkvæmt skilmálum þessum. Það sama á við um ábyrgð á tjóni sem rekja má til sambandsleysis eða rofa á fjarskiptum.
Farsímagreiðslur bera í engu tilviki ábyrgð á öðru en beinu tjóni notanda. Þannig bera Farsímagreiðslur ekki ábyrgð á rekstrartapi notanda og/eða þriðja aðila, né heldur afleiddu tjóni slíkra aðila, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á lausninni eða til annarra ástæðna, jafnvel þó að Farsímagreiðslum hafi verið tilkynnt um möguleikann á slíku tjóni.
Í öllum tilvikum skal ábyrgð Farsímagreiðslna, þ.á m. vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu (svo sem í tengslum við öryggisráðstafanir), truflana, tafa, tjóns eða galla á lausninni, takmarkast við kr. 200.000, að því marki sem heimilt er á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
Ef Farsímagreiðslur geta ekki uppfyllt skyldur sínar vegna neyðarréttarlegra eða óviðráðanlegra atvika (force majeure) falla skuldbindingar hans, þ.m.t. möguleg bótaábyrgð, niður á meðan slíkt ástand varir
Notandi ber ábyrgð á að gæta öryggis aðgangsupplýsinga sinna að Pay, svo sem PIN-númeri sínu. Notandi skal eftir fremsta megni reyna koma í veg fyrir misnotkun á aðgangi hans að Pay, t.d. með því að veita aldrei þriðja aðila aðgang að snjalltæki sínu þar sem Pay er aðgengilegt eða með því að læsa snjalltæki með kóða eða takkalæsingu. Notandi á ekki að upplýsa aðra um slíka aðgangskóða.
Gruni notanda að aðgangsupplýsingum hans, t.d. PIN-númeri, hafi verið stolið eða þær notaðar í leyfisleysi af þriðja aðila, ber notanda að breyta PIN-númeri sínu án tafar og hafa samband við okkur.
Ef símtækið, sem notandi hefur til umráða til að nýta Pay, tapast eða er stolið ber notanda að læsa aðgangi sínum með því að tilkynna atvikið til okkar um leið, sbr. gr. 3.
Greiðsla, sem framkvæmd hefur verið með Pay og sem hefur verið auðkennd með réttum upplýsingum frá notanda, telst gild og samþykkt af notanda. Ef annar aðili hefur aðgang að þessum upplýsingum og tekst að komast í gegnum auðkennis- og öryggisathugun að aðgangi notanda, áskilja Farsímagreiðslur sér rétt til að líta svo á að greiðslur sem kunna að vera framkvæmdar með Pay séu samþykktar af notanda og ábyrgist félagið ekki tjón sem af þeim hlýst.
Teljum við að gögn og upplýsingar bendi til þess að greiðsla, sem notandi hefur tilkynnt sem ranga, hafi í raun verið samþykkt og staðfest af notanda eða með réttum öryggisupplýsingum notanda, áskiljum við okkur rétt til að bakfæra leiðréttingu sem kann að hafa farið fram á grundvelli tilkynningar notanda um meinta óheimila greiðslu.
Einnig kann aðgangi notanda að Pay að verða læst tímabundið, ef við teljum ástæðu til, svo sem ef við teljum vafa leika á auðkenningu notanda. Hið sama á við um notkunarmöguleika notanda í Appinu.
Við gætum öryggis Pay með m.a. eftirfarandi ráðstöfunum:
Lausnin er veitt notendum Pay að kostnaðarlausu og er ekkert skráningargjald, mánaðar- eða árgjald gjaldfært vegna notkunar á Pay Appinu. Engin þóknun er gjaldfærð þegar greiðsla er framkvæmd með Pay.
Notandi ber eftir sem áður ábyrgð á greiðslu gjalda vegna fjarskiptaþjónustu sem hann kaupir frá sínu fjarskiptafélagi vegna notkunar á snjalltæki sínu, t.d. notkun á gagnamagni. Hið sama á við um gjöld sem viðskiptabanki, kortaútgefandi eða færsluhirðir notanda kann að gjaldfæra notanda um vegna þjónustu sem þessir aðilar veita honum, t.d. vegna notkunar á greiðslukorti notanda sem skráð er í Pay.
Samningur þessi hefur ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfunda- eða hugverkarétti frá Farsímagreiðslum, Símanum eða dótturfélögum þess til notanda.
Allt innihald Appsins og vefsvæðis er í eigu Farsímagreiðslna, Símans eða dótturfélaga þess, þar með talið vörumerkið Pay, texti, hönnun, grafík, ljósmyndir, myndir og ritstýrt efni er varið höfundarétti.
Notanda er einungis heimilt að nýta sér upplýsingar eða efni af vefsíðu Símans eða Appinu Pay til persónulegra nota í samræmi við skilmála þessa.
Dreifing, fjölföldun eða endurútgáfa af höfundavörðu efni Farsímagreiðslna, Símans eða dótturfélaga þess er með öllu óheimil.
Við áskiljum okkur rétt til að gera tæknilegar breytingar eða uppfærslur á Pay þegar þörf krefur, þ.á m. til að bæta lausnina. Munum við tilkynna notendum um slíkar breytingar í þeim tilvikum sem þær gætu haft áhrif á notkun á Pay eftir því sem unnt er. Munu tilkynningar birtast á vefsíðu Pay.
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra skilmála þessa. Nýjasta útgáfa skilmála þessa er aðgengileg á vefsíðu Pay (www.siminnpay.is) og í gegnum Appið.
Breytingar á skilmálum Pay verða kynntar notendum með skriflegum hætti, svo sem með skilaboðum í gegnum Appið eða tölvupósti. Samþykki notandi ekki breytta skilmála Pay getur notandi ekki lengur nýtt sér lausnina eftir að breyttir skilmálar taka gildi og verður aðgangi hans þá sjálfkrafa læst og aðgangi hans eytt að einum mánuði liðnum.
Farsímagreiðslum er heimilt að framselja, að hluta eða öllu leyti, réttindi sín og skyldur samkvæmt samningi þessum með tilkynningu til notanda en notanda er það óheimilt án samþykkis Farsímagreiðslna. Þá er Farsímagreiðslum heimilt að útvista verkefnum í tengslum við samning þennan, að hluta eða öllu leyti, til þriðja aðila, í samræmi við heimildir laga.
Farsímagreiðslur áskilja sér rétt til að senda notanda skilaboð sem tengjast notkun eða virkni Pay, svo sem með því að senda tölvupóst, SMS eða skilaboð í gegnum Appið. Farsímagreiðslur áskilja sér jafnframt rétt til að óska eftir samþykki notanda til að senda honum markaðsskilaboð, þ.á m. frá þriðja aðila. Unnt er að afturkalla slíkt samþykki hvenær sem er
Óski notandi þess að koma á framfæri ábendingu eða kvörtun vegna Pay er unnt að hafa samband í Netspjallið á siminn.is eða með því að hafa samband í síma 800-7000.
Komi upp ágreiningur milli notenda Pay, hvort sem er í samskiptum milli þeirra eða viðskiptum sem tengjast notkun á Pay, ber notendum að reyna ná sátt sín á milli. Við berum enga ábyrgð á ágreiningi milli notenda Pay og verður ekki milligönguaðili vegna slíks ágreinings.
Við berum ekki ábyrgð á ágreiningi milli notanda og söluaðila og/eða þess færsluhirðis sem þjónustar viðkomandi söluaðila, sbr. einnig gr. 5.2.
Jafnframt berum við ekki ábyrgð á virkni, útgáfu eða greiðsluheimild þess greiðslukorts sem notandi Pay skráir í lausnina. Ágreining um slík atriði þarf að bera undir kortaútgefanda greiðslukortsins
Við áskiljum okkur rétt til að hætta að bjóða lausnina Pay hvenær sem er án sérstakra skýringa. Komi til þess verður notendum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.
Um skilmála þessa og lausnina Pay gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli notanda og Farsímagreiðslna vegna lausnarinnar Pay, sem ekki reynist unnt að leysa með farsælum hætti milli aðila, skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir eru gefnir út af Farsímagreiðslum. Skilmálarnir tóku gildi þann 22. febrúar 2018 og voru uppfærðir í janúar 2019.
Lagalegur fyrirvari
Útg. 1.0. – 3. september 2021