Þessa helgina er Kópavogurinn fullur af hressum fótboltastelpum og fjölskyldum þeirra þar sem Símamótið fer fram í 38. árið röð.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Símanum og Jóhann Þór Jónsson, formaður barna og unglingaráðs Breiðabliks nýttu tækifærið og undirrituðu nýjan samstarfssamning um Símamótið til næstu fimm ára.
Síminn hefur verið bakhjarl mótsins undanfarin 18 ár og hafa bæði umgjörð og gæði mótsins aukist ár frá ári. Símamótið er stærsti einstaki íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi, með um 3.000 þátttakendur úr áttunda, sjöunda, sjötta- og fimmta flokki kvenna.
Mótið hefur verið brautryðjandi í að efla ímynd kvennaknattspyrnu á Íslandi og á margan hátt breytt leiknum og menningu í kringum starfið. Það er því mikið fagnaðarefni að Símamótið fer fram í óbreyttri mynd næstu ár.